Tonny Mawejje er verðmætasti leikmaður Pepsi-deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2013 23:30 Tonny Mawejje. Mynd/Anton
Skrifstofa KSÍ hefur gefið út afreksstuðla leikmanna og hafa þeir verið uppfærðir á vef KSÍ. Þarna fara starfsmenn KSÍ eftir reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga. Það er aðeins einn leikmaður í Pepsi-deild karla í fótbolta sem nær hæsta stuðli hjá KSÍ. Úgandamaðurinn Tonny Mawejje er með stuðulinn tíu og er því metinn á eina milljón króna. Tonny Mawejje er 27 ára gamall miðjumaður sem var að spila sitt fimmta tímabil með Eyjaliðinu. Hann er landsliðsmaður Úganda og það skilar honum hæsta stuðli á listanum. Menn eiga þrjá möguleika á því að ná stuðlinum tíu og fara þeir hér á eftir.Stuðullinn er 10 fyrir leikmann sem er 29 ára eða yngri og hefur leikið a.m.k. helming af A-landsleikjum Íslands undangengin 4 ár; eða a.m.k. 20 A-landsleiki. 25 ára eða yngri og hefur leikið a.m.k. helming af A-landsleikjum Íslands undangengin 3 ár; eða a.m.k. 15 A-landsleiki. 22 ára eða yngri og hefur leikið a.m.k. helming af A-landsleikjum Íslands undangengin 2 ár; eða a.m.k. 10 A-landsleiki alls. Sjö leikmenn ná stuðlinum sjö og eru tveir þeirra þegar farnir út í atvinnumennsku eða þeir Arnór Ingvi Traustason og Hólmbert Aron Friðjónsson. Hinir eru Andri Rafn Yeoman, Brynjar Gauti Guðjónsson, Emil Atlason, Kristján Gauti Emilsson og Sverrir Ingi Ingason.Stuðullinn er 7 fyrir leikmann sem nær ekki 10 en er 30 ára og hefur leikið a.m.k. helming af A-landsleikjum Íslands undangengin 4 ár; eða a.m.k. 20 A-landsleiki. 29 ára eða yngri og hefur leikið a.m.k. fjórðung af A-landsleikjum Íslands undangengin 4 ár; eða a.m.k. 12 A-landsleiki. 25 ára eða yngri og hefur leikið a.m.k. fjórðung af A-landsleikjum Íslands undangengin 3 ár; eða a.m.k. 8 A-landsleiki. 22 ára eða yngri og hefur leikið a.m.k. fjórðung af A-landsleikjum Íslands undangengin 2 ár; eða a.m.k. 4 A-landsleiki; eða hefur leikið a.m.k. helming af U21-landsleikjum Íslands undangengin 2 ár. KSÍ birtir frétt um þetta á heimasíðu sinni þar sem fram kemur að mikilvægt sé að forráðamenn félaga fari vandlega yfir stuðla leikmanna sinna. Í 18. grein reglugerðar KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga kemur fram hvernig stuðlarnir eru reiknaðir en hana má sjá hér.Leikmenn með stuðla 5, 7 og 10 hjá KSÍ: Tonny Mawejje ÍBV 10 (metinn á 1.000.000 krónur) Andri Rafn Yeoman Breiðablik 7 (metinn á 700.000 krónur) Arnór Ingvi Traustason Keflavík 7 Brynjar Gauti Guðjónsson ÍBV 7 Emil Atlason KR 7 Hólmbert Aron Friðjónsson Fram 7 Kristján Gauti Emilsson FH 7 Sverrir Ingi Ingason Breiðablik 7 Almarr Ormarsson Fram 5 (metinn á 500.000 krónur) Arnar Darri Pétursson Stjarnan 5 Atli Guðnason FH 5 Atli Sigurjónsson KR 5 Árni Snær Ólafsson ÍA 5 Árni Vilhjálmsson Breiðablik 5 Bjarni Ólafur Eiríksson Valur 5 Björn Daníel Sverrisson FH 5 Brynjar Ásgeir Guðmundsson FH 5 Elfar Freyr Helgason Breiðablik 5 Emil Pálsson FH 5 Finnur Orri Margeirsson Breiðablik 5 Guðmundur Kristjánsson Breiðablik 5 Gunnar Þorsteinsson ÍBV 5 Hannes Þór Halldórsson KR 5 Jósef Kristinn Jósefsson Grindavík 5 Kristinn Jónsson Breiðablik 5 Matthías Vilhjálmsson FH 5 Tómas Óli Garðarsson Breiðablik 5 Það er hægt að sjá allan listann með því að smella hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Sjá meira