Halda „svikum“ fyrri stjórnar um raforkuskatt Haraldur Guðmundsson skrifar 8. nóvember 2013 08:34 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, gagnrýndu báðir framlengingu raforkuskatts í desember 2012.
Raforkuskattur verður áfram innheimtur á næsta ári samkvæmt frumvarpi til fjárlaga þrátt fyrir harða gagnrýni leiðtoga núverandi ríkisstjórnarflokka á ákvörðun um að framlengja hann í desember 2012. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sagði í ræðu á Alþingi þann 6. desember 2012, þá óbreyttur stjórnarandstöðuþingmaður, að framlengingin sýndi „ósvífni“ þáverandi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. „Vonandi verður skaðinn ekki langvarandi, vonandi tekst nýrri ríkisstjórn fljótt að sýna fram á að hún haldi loforð og samninga betur en sú sem ég vona að fari frá næsta vor,“ sagði Sigmundur. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, gagnrýndi ákvörðunina einnig í ræðu á Alþingi þann 3. desember sama ár. „Svikin loforð á borð við þetta eru, ásamt öðru, til þess fallin að fæla menn frá því að koma með fjármagn til Íslands,“ sagði Bjarni Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar verður þessi framlenging, sem ráðherrarnir gagnrýndu, látin standa til ársins 2015. Stóriðjufyrirtækin þurfa því að greiða um 1,7 milljarða króna í skatt vegna raforkukaupa á næsta ári. Framlengingin gekk þvert á skriflegt samkomulag fyrrverandi iðnaðar- og fjármálaráðherra við stóriðjufyrirtækin árið 2009 og skriflega yfirlýsingu, sem Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, sendi Alcan á Íslandi í júní 2010. Sú yfirlýsing var forsenda þess að Rio Tinto Alcan réðist í 60 milljarða fjárfestingarverkefni í Straumsvík. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, hefur ásamt öðrum forsvarsmönnum álfyrirtækja á Íslandi gagnrýnt framlengingu skattsins. „Það er sárt að borga áfram um eina milljón króna á dag í raforkuskatt sem átti að vera tímabundinn og þurfa á sama tíma að segja fólki upp vegna sparnaðar,“ segir Rannveig.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira