Neymar og Messi skoruðu báðir í sigri Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2013 17:30 Lionel Messi og Neymar með syni sína fyrir leikinn, Davi Lucca (Neymar) og Thiago (Messi). Nordicphotos/Getty
Barcelona hélt áfram sigurgöngu sinni í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið vann 4-1 heimasigur á Real Sociedad í sjöttu umferð tímabilsins. Barca er með fullt hús og 22 mörk í fyrstu sex leikjum sínum. Neymar skoraði sitt fyrsta deildarmark í kvöld og þetta var ennfremur fyrsti leikur liðsins þar sem hann og Lionel Messi skora báðir. Barcelona byrjaði af krafti og eftir aðeins átta mínútur var Neymar búinn að skora eftir sendingu Dani Alveg og leggja upp skallamark fyrir Lionel Messi. Sergio Busquets skoraði þriðja markið á 23. mínútu eftir að Messi hafi skömmu áður skotið í bæði slá og stöng. Yfirburðir Barcelona voru miklir og þeir fóru kæruleysislega með nokkur úrvalsfæri eftir snilldar samleik þar sem Neymar, Andrés Iniesta og Messi voru vanalega í fararbroddi. Messi náði ekki að bæta við mörkum þrátt fyrir ákjósanlega færi en er kominn með sjö mörk í fyrstu sex umferðunum. Það leit út fyrir að Barcelona ætlaði hreinlega að niðurlægja liðsmenn Real Sociedad en gestirnir gáfust ekki upp og náðu að bjarga aðeins andlitinu með góðum seinni hálfleik. Alberto De La Bella náði að minnka muninn í 3-1 á 64. mínútu og setja smá spennu í leikinn en Marc Bartra innsiglaði sigurinn á 77. mínútu eftir stoðsendingu frá Lionel Messi.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Sjá meira