Hermann lofaði Eyjamönnum fimmtán bjórum fyrir sigurinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2013 14:45 David James, markvörður Eyjamanna. Mynd/Stefán
David James, markvörður Eyjamanna, skrifaði um það í pistli á The Observer þegar hann spilaði sinn þúsundasta leik á ferlinum en það gerði kappinn með ÍBV á móti Fylki á Fylkisvellinum á dögunum. David James segist einnig vera mikill tölfræðiáhugamaður og er alveg með það á hreinu hvaða met hann á og á ekki. James segir frá því að hann hefði á sínum tíma aldrei getað ímyndað sér að spila þúsundasta leikinn á ferlinum fyrir lið frá lítilli eyju fyrir framan 1200 manns og með litríkt höfuðband á enninu sem er eins og hann segir í tísku á Íslandi. James segist þó vera jafn spenntur fyrir að spila fótbolta og áður en hann er orðinn 43 ára gamall. James segir að hinir í liðinu hafi haft meiri áhuga á þeim fimmtán bjórum sem þjálfarinn Hermann Hreiðarsson bauð leikmönnum liðsins fyrir sigur í leiknum. Eftir leikinn var síðan rifist um það hvort að þetta voru fimmtán bjórar fyrir allt liðið eða fimmtán bjórar á hvern leikmann. James segir þúsundasta leikinn ekki hafa getað endað betur, því liðið vann langþráðan sigur, hann hélt hreinu og var kosinn maður leiksins og ÍBV náði í sitt þúsundasta stig í efstu deild. James skrifar líka um Heimaey í pistli sínum en svo fer hann út í það að skrifa um áhuga sinn á tölfræði og metum. Hann hefur þannig reiknað út að hann hafi spilað fleiri mínútur í úrvalsdeildinni en Ryan Giggs og að leikmaður Manchester United vanti enn fjögur þúsund mínútur að ná honum. Það er hægt að lesa þennan skemmtilega pistil með því að smella hér.
Enski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Hleypur í óvenjulegum aðstæðum: „Rosalegur hiti hérna“ Sport Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Fleiri fréttir KR skoraði sex og fór á toppinn Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Oliver til FH Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Sjá meira