Sitkagreni á Klaustri rauf 25 metra múrinn Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. mars 2013 06:00 Sitkagreni hefur vaxið vel í Klausturskóginum. Fréttablaðið/Pjetur
Hæsta tré landsins er sitkagreni sem vex á Kirkjubæjarklaustri, að því er fram kemur á vef Skógræktar ríkisins. Þegar skógarvörðurinn á Suðurlandi mældi þar tré nýverið reyndist eitt þeirra 25,2 metrar á hæð. „Er þetta að öllum líkindum fyrsta tré sem rýfur 25 metra hæðarmúrinn og það hæsta á landinu," segir í umfjöllun Skógræktarinnar. Fjölmörg tré í skóginum sem vex í brekkunum fyrir ofan byggðina á Kirkjubæjarklaustri eru sögð hafa vaxið yfir tuttugu metra hæð og nokkur eru sögð rúmlega 24 metra há. Þá kemur fram að í skóginum sé eitt af rúmmálsmestu trjám landsins. Þannig er sverasta tréð sagt með um 65 sentímetra þvermál í brjósthæð og um 23,7 metrar á hæð. „Má áætla að trjábolurinn gæti náð þremur rúmmetrum viðar." Skógurinn á Kirkjubæjarklaustri er í einkaeigu en hefur verið í umsjá Skógræktarinnar síðan 1964. „Trén á Klaustri eru enn í fullum vexti og verður spennandi að fylgjast með vexti þeirra, en þau gætu, miðað við núverandi vaxtarhraða, náð 30 metra hæð á næstu 10 til 15 árum," segir í umfjöllun Skógræktarinnar.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Sjá meira