Innlent

Flugvél Icelandair sveigði sjálfkrafa

Boeing 757 flugvél Icelandair, sem bilaði skömmu fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli á þriðjudaginn, sveigði skyndilega af stefnu. Frá þessu er greint á Ruv.is og vitnað í rannsókn Rannsóknarnefndar flugslysa.

Líkt og greint var frá í síðustu viku bilaði eitt af þremur vökvaaflskerfum þegar flugvélin hóf lækkun á flugi inn til Keflavíkurflugvallar. Aðflugið hafði verið að fullu eðlilegt fram að lokaaðflugi.

Ragnar Guðmundsson, sem stjórnar rannsókn Rannsóknarnefndarinnar, segir að flugvélin hafi stefnt beint á flugbrautina og verið á sjálfstýringu þegar atvikið átti sér stað. Beygjan hafi verið mjög skörp en vélin þó hvorki misst hæð né hraða.

Annar flugmannanna hafi tekið sjálfsstýringuna af og náð fullri stjórn á vélinni. EKki er vitað hve lengi tók að ná stjórn á vélinni en rannsóknin stendur enn yfir. Þá er ekki vitað hvað varð til þess að vélin sveigði af leið.

Ragnar segir að bilunin í vökvaaflskerfi vélarinnar ein og sér eigi ekki að valda því að vélin beygi sjálfkrafa.


Tengdar fréttir

Vélin lent heilu og höldnu

Boeing 757 farþegaþota á vegum Icelandair nauðlenti á Keflavíkurflugvelli á ellefta tímanum í kvöld. Lendingin heppnaðist vel en vandræðin má rekja til bilunar í stjórnbúnaði. Samkvæmt upplýsingum frá ISAVIA var neyðarástandi lýst yfir og var viðbúnaður mikill.

Rannsókn hafin á biluninni í þotu Icelandair

Rannsóknanefnd flugslysa hefur þegar hafið rannsókn á því hvað olli bilun í vökvaknúnum stjórnbúnaði Icelandair þotu skömmu fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi, sem olli því að neyðarástandi var lýst yfir á vellinum, samkvæmt nýrri flugslysaáætlun.

Ekki vitað hvað orsakaði truflun í lokaaðflugi

Eitt af þremur vökvaaflskerfum flugvélar Icelandair bilaði þegar flugvélin hóf lækkun á flugi inn til Keflavíkurflugvallar í gærkvöldi. Unnið var eftir gátlista þegar þetta atvik kom upp.

Sátu rýnifund vegna bilunar í þotu Icelandair

Fulltrúar viðbragðsaðila á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu sátu í dag rýnifund um atvik sem átti sér stað í þotu Icelandair fyrr í vikunni. Bilun varð í vökvaknúnum stjórnbúnaði þotunnar. Samkvæmt nýrri flugslysaáætlun var neyðarástandi lýst yfir á flugvellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×