Almarr: Það er ekki eins og þeir séu með einhverja sögu Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 17. ágúst 2013 20:24 Almarr Ormarsson. Mynd/Anton „
Við gáfumst ekki upp þrátt fyrir að lenda 2-0 undir. Að fara 2-0 inn í hálfleik er hrikalega erfitt en við börðumst eins og ljón,“ sagði Almarr Ormarsson sem skoraði tvö mörk fyrir Fram og lagði upp það þriðja þegar Fram varð bikarmeistari í dag. Fram og Stjarnan gerðu 3-3 jafntefli í leiknum sjálfum en Fram vann vítakeppnina 3-1. „Ég veit ekki hvort þetta var víti í fyrsta markinu og mér fannst við skora mark í fyrri hálfleik sem var ekki dæmt. Við héldum áfram og sýndum hvað í okkur býr. „Við höfum ekki verið duglegir við þetta í sumar en við höfum átt það til undanfarin ár að koma til baka og við gáfum allt í þetta í dag og uppskárum. „Það var næstum því erfiðara að lenda 3-2 undir en 2-0 af því að við vorum búnir að jafna en ég er svo ánægður með strákana að halda áfram og hafa trú á þessu. Það er ekki auðvelt í svona leik. Hálft liðið var byrjað að haltra það sprakk pungurinn á Ömma (Ögmundi markverði). „Hálft liðið var á öðrum fæti en við hoppuðum á öðrum fæti og kláruðum þetta þannig. Það voru kannski frekar þeir sem reyndu að skora í framlengingunni við vorum farnir að sjá að vítaspyrnukeppni væri betra fyrir okkur. „Sem betur fer ákvað Ömmi að verja sína fyrstu vítaspyrnu á ævinni. Það var ágæt tímasetning á því. „Ég heyrði einhvers staðar út undan mér að Stjarnan hafi fagnað að fá okkur í úrslit en ekki Breiðablik. Ég hlæ að svoleiðis sögum. Það var mikið talað um að þeir væru miklu betra lið og með miklu betri áhorfendur og eitthvað svona kjaftæði og að sagan væri ekki með okkur. Það er ekki eins og þeir séu með einhverja sögu. „Þetta var hörkuleikur og tvö frábær lið. Þetta hefði getað dottið þeirra megin, við vorum ekki mikið betri, alls ekki en mér fannst við eiga þetta skilið. „Loksins landar liðið titli aftur. Það var orðið allt of langt síðan síðast og vonandi getur klúbburinn notað það áfram og byggt á því. Evrópukeppni á næsta ári og fyrsti titillinn lengi, það hjálpar,“ sagði Almarr.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira