Færði Rodgers listaverk að gjöf Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 20. júlí 2013 17:53 Rodgers (t.v.) var himinlifandi með verkið.
Diskóboltinn Nile Rodgers, sem hélt tónleika í Hörpu í vikunni ásamt hljómsveitinni Chic, fékk óvæntan glaðning rétt áður en hann steig á svið. Íslenski listmálarinn Hjalti Parelius færði goðinu mynd sem ber nafnið Notorious, en hún er nefnd í höfuð smellsins sem Rodgers samdi fyrir Duran Duran á sínum tíma. „Ég kynnti mér hann í kjölfar vinsælda lagsins sem hann gerði með Daft Punk og komst þá að því að hann hefur samið svo gríðarlegt magn af smellum,“ segir Hjalti, sem ákvað í kjölfarið að færa honum þakklætisvott fyrir áratugi af stórkostlegri tónlist. „Ef einhver kann að meta poppaða myndlist þá er það hann, enda var hann himinlifandi með gjöfina.“ Rodgers var reyndar svo ánægður með glaðninginn að hann kallaði Hjalta á svið til sín í síðasta laginu ásamt fleirum, og fékk myndlistarmaðurinn því að dilla sér í góðar tíu mínútur við hlið meistarans. En er Rodgers frægasta stjarnan sem Hjalti hefur fært mynd að gjöf? „Já ætli það ekki. Mig langaði mikið að koma mynd á Tom Cruise þegar hann var hér, enda held ég mikið upp á hann, þó ég sé reyndar ekki sammála honum í trúmálum,“ segir Hjalti og hlær. „En hann er töffari og það reyndist ómögulegt að komast að honum. Það er stigsmunur á milli stjarnanna. Cruise er með vegg utan um sig. Þú þarft að fara í gegnum svona tuttugu manns áður en þú kemur að aðstoðarmanninum hans.“ Hjalti undirbýr um þessar mundir sýningu sem verður opnuð á Menningarnótt, en fyrir áhugasama má sjá helstu verk á vefsíðunni hans.
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira