Innlent

Þurftu að grafa sig eftir flugritunum

Boði Logason skrifar
Vélin er enn við flugbrautina á Keflavíkurflugvelli.
Vélin er enn við flugbrautina á Keflavíkurflugvelli.
Rannsóknarteymi náði flugritunum úr rússnesku þotunni, sem brotlenti á Keflavíkurflugvell í gærmorgun, seint í gærkvöldi og verða þeir skoðaðir á næstu dögum. Áhöfn flugvélarinnar hefur verið yfirheyrð með aðstoð túlks.

Óhappið varð á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun þegar að hjól á rússneskri þotu fóru ekki niður við lendingu. Flugstjóri vélarinnar greip því til þess ráðs að magalenda henni og rann hún til á brautinni. Fimm voru um borð í vélinni og var einn af þeim fluttur á slysadeild með brotinn ökla. Vélin var hér á landi við flugprófanir.

Ragnar Guðmundsson, stjórnandi rannsóknarinnar, segir að áhöfnin hafi verið yfirheyrð í gær.

„Rannsóknin hefur gengið ágætlega, henni miðaði reyndar nokkuð hægt í gær einfaldlega af þeim sökum að við þurftum túlk til aðstoðar áður en við tókum viðtöl við áhöfnina," segir hann.

Þá hefur íslenska rannsóknarteymið komist yfir flugrita vélarinnar.

„Við erum búnir að fjarlægja flugritana, bæði hljóðritun og ferðaritana, úr vélinni. Það var töluvert mál að gera það vegna þess að það þurfti að komast undir vélina, það er lúga aftarlega undir vélinni, þar sem hún lá ekki á hjólastellinu þá þurfti að grafa undan vélinni til að komast í þessa lúgu. Það náðist seint í gærdag og eru þeir nú í vörslu rannsóknarnefndarinnar. Það stendur til að senda þá í aflestur, við vitum ekki enn sem komið er hvert - það verður tekin ákvörðun um það í dag," segir Ragnar.

Þotan, sem er af gerðinni Sukhoi SuperJet-100, er enn fyrir utan flugbrautina þar sem hún stöðvaðist.

„Vélin er talsvert mikið skemmd, það á eftir að lyfta vélinni, þannig við vitum ekki nákvæmlega hvernig skemmdirnar eru undir henni. Það eru miklar skemmdir á hreyflum og af því sem er að sjá einnig undir henni,“ segir hann.

„Það munu koma rannsóknaraðilar frá Rússlandi seint í kvöld til Íslands, og þá verður tekin ákvörðun um framhaldið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×