Barcelona staðfestir ráðningu Martino Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. júlí 2013 10:23 Martino stýrir hér landsliði Paragvæ á HM 2010. Nordic Photos / AFP
Argentínumaðurinn Gerardo Martino verður næsti þjálfari Barcelona en félagið staðfesti í morgun að hann hefði skrifað undir tveggja ára samning. Martino er 50 ára gamall og tekur við af Tito Vilanova sem hætti í síðustu viku vegna veikinda. Vilanova er 44 ára gamall en þarf að fara í langa krabbameinsmeðferð. Martino stýrði síðast Newell's Old Boys í heimalandinu en hann er einnig leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins með 505 leiki. Hann lék á sínum tíma einn leik með argentínska landsliðinu og spilaði einnig með liðum á Spáni, Ekvador og Síle. Hann hóf þjálfaraferil sinn í neðri deildum Argentínu en náði svo góðum árangri með félagslið í Paragvæ. Þar tók hann við landsliðinu árið 2006 og kom liðinu í fjórðungsúrslit HM 2010 þar sem liðið tapaði fyrir Spáni, 1-0. Martino tók við Newell's Old Boys í fyrra og gerði liðið að meisturum á sínu fyrsta tímabili. Lionel Messi, stjörnuleikmaður Barcelona, hefur áður talað vel um Martino en þeir koma báðir frá sama héraði í Argentínu. „Mér líkar vel við Tata Martino. Hann er frábær þjálfari sem lætur lið sín spila góðan fótbolta. Við berum allir virðingu fyrir honum,“ sagði Messi í blaðaviðtalið í fyrra.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Sjá meira