Íslenskur strákur fer heljarstökk afturábak á hjólabretti Kristján Hjálmarsson skrifar 29. júlí 2013 15:18 Egill Gunnar Kristjánsson sýnir ótrúlega hæfileika þegar hann blandar hjólabretti við fimleika.
Ótrúlegt myndband af þrettán ára íslenskum strák hefur farið um eins og eldur í sinu á netinu. Í myndbandinu sést drengurinn, Egill Gunnar Kristjánsson, fara afturábak heljarstökk á hjólabretti og lenda örugglega. Klukkan þrjú í dag höfðu rúmlega þrjú þúsund manns horft á myndbandið á Youtube. "Ég er bara búinn að vera í tvö eða þrjú ár á hjólabretti en ég er búinn að æfa fimleika hjá Ármanni í fimm ár," segir Egill Gunnar. Í myndbandinu, sem sjá má hér fyrir neðan, má sjá Egil Gunnar leika listir sínar en það er tekið á brettasvæðinu í Laugardalnum. "Ég var svolítið hræddur fyrst þegar ég var að prófa back flipið en nú er þetta ekkert mál," segir Egill Gunnar. Kristján Þorgeir Ársælsson, faðir Egils Gunnars, segir piltinn ákaflega efnilegan. "Hann fer backflip á öllu þessi drengur. Hann er greinilega að verða frægur á netinu," segir Kristján Þorgeir. Að sögn Kristjáns Þorgeirs er Egill Gunnar fimleikamaður að upplagi. "Hann er bæði Íslandsmeistari og Norðurlandameistari í fimleikum. Svo hrífur þetta jaðarsport hann mikið, hjólabretti, snjóbretti og parkour. Það skiptir engu máli hvað þú setur á lappirnar á honum hann verður alltaf góður í því. Hann hefur rosalega hæfileika," segir faðirinn stoltur.Hefur fót- og handleggsbrotnað Kristján Þorgeir viðurkennir að vera stundum hræddur um piltinn. "Hann hefur fótbrotnað og handleggsbrotnað tvisvar en það stoppar hann ekki. Hann er hins vegar ekki hræddur við þetta. Hann er kominn með það mikla hæfileika að hann veit hvað hann getur og hvað ekki. Hann hefur það mikla stjórn á líkamanum og hann gæti náð langt ef hann heldur sér heilum," segir Kristján Þorgeir. "Auðvitað vil ég alltaf að hann sé með hjálm en maður fær ekki alltaf að ráða. Hann notar að vísu alltaf hjálm á snjóbrettinu og á reiðhjóli en honum finnst hjálmurinn flækjast fyrir í öðru." Fleiri myndbönd af Agli Gunnari og afrekum hans má nálgast hér.
Mest lesið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira