Innlent

Amen eftir efninu á Alþingi

Heimir Már Pétursson skrifar
Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins undrast andstöðu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna við ósk formanna stjórnarflokkanna um frestun á þingfundum um þrjár vikur í haust vegna þess að ekki hafi unnist tími til fjárlagagerðar og frágangs tekjufrumvarpa í tengslum við fjárlögin.

En þingsköp gera ráð fyrir að fjárlagafrumvarp sé lagt fram í upphafi haustþings og nú í fyrsta skipti á einnig að leggja fram tekjufrumvörp sem tengjast fjárlögunum í upphafi þings. En gildistöku þess ákvæðis var frestað í fyrra að beiðni fyrrverandi ríkisstjórnar.

„Nú þegar beðið er um frestun vegna þess að það eru nýafstaðanar kosningar, það eru nýir flokkar við, það tók mánuð hér að mynda ríkisstjórn og farið er fram á að þetta sé skoðað - þá verður hér uppi fótur og fit, og hér þarf að halda þingsköpin. Fyrirgefiði hæstvirtur forseti, þegar menn segjast svo að það eigi ekki að gera þetta pólitísk það segi ég bara amen," sagði Ragnheiður á þingi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×