Þegar geimverurnar komu á Snæfellsnes Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 2. júlí 2013 22:18
Félagaranir og leikararnir Kári Viðarsson og Víkingur Kristjánsson hafa verið með geimverur og fljúgandi furðuhluti á heilanum síðustu vikur, en þeir sýna um þessar mundir leikritið samsögulega 21.07 þar sem fjöldi fólks lagði leið sína á Snæfellsnes til að verða vitni að heimsókn utan úr geimnum. Ísland í dag fjallaði um málið í kvöld og Hugrún Halldórsdóttir fór vestur á Snæfellsnes þar sem hún ræddi við þá félaga. Hægt er að horfa á innslagið í spilaranum hér að ofan. Ómar Lúðvíksson, Oddviti Neshrepps, sagði á sínum tíma í viðtali við Ómar Ragnarson að sér hefði verið falið umboð til að ávarpa geimverurnar. „Við verðum að taka þetta alvarlega eins og margt annað, þess vegna var mér falið að taka á móti þeim með pompi og pragt. Ef þeir skilja ekki okkar íslensku tölum við bara fingramál. Við vonum bara að þær komi," sagði hann meðal annars í viðtalinu. Leikararnir muna vel eftir atburðunum. Þá hafa fjölmargir haft samband við þá eftir að hafa frétt af leikritinu og deilt sínum minningum um geimverurnar á Snæfellsnesi, en í sýningunni er slíkum sögum fléttað saman. „Mín uppáhaldssaga er til dæmis sagan af hinni áströlsku Susan, en hún kom sérstaklega til Íslands vegna þess að hún vildi flytja út í geim. Í heimalandi hennar hafði hún verið send á geðdeild, en hún var fullviss um að hún væri geimvera," segir Kári. Þeir félagar segja forvitnilegt að hugsa til þess hvernig atburðirnir hefðu undið upp á sig í dag. „Maður veltir því fyrir sér hvað hefði getað gerst 20 árum síðar, þegar Facebook og samskiptamiðlarnir eru komnir til sögunnar. Þetta var mjög stórt dæmi á sínum tíma og fjölmiðlar komu frá öllum heimshornum. Það voru svona 500 manns sem komu hingað til að freista þess að sjá verurnar en við reiknuðum gróflega út að í dag gætu það auðveldlega hafa verið 20 þúsund manns.“ Myndskeiðið hér að ofan er stórskemmtilegt, en þar bregður fyrir ósviknum upptökum sem teknar voru í kringum atburðina árið 1993.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira