Páll ákærður fyrir vopnalagabrot Valur Grettisson skrifar 4. júlí 2013 16:21 Páll heldur úti vinsælu veiðisafni á Stokkseyri.
Ríkissaksóknari hefur ákært Pál Reynisson, forstöðumann Veiðisafnsins á Stokkseyri, fyrir vopnalagabrot sem áttu sér stað á heimili Páls sumarið 2011. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag.RÚV greinir frá því að Páll hafi verið ákærður í þremur liðum. Þannig er honum gefið að sök að hafa hleypt þremur skotum af Smith & Wesson-skammbyssu, undir áhrifum áfengis, inni á heimili sínu og við það. Fyrsta skotinu hleypti Páll af innandyra, því næsta út um útidyrahurð á heimili sínu, sem er í þéttbýli, og því þriðja utandyra við húsnæðið. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa í viðræðum við tvo lögreglumenn, undir áhrifum áfengis, farið inn í herbergi gegnt útidyrahurðinni og sótt tvær skammbyssur, aðra af gerðinni Smith & Wesson og hina af gerðinni Glock 23, komið til baka og handleikið þær andspænis lögreglumönnum og tjáð þeim að þær voru hlaðnar. Þriðji liður ákærunnar lýtur svo að því að hann hafi hagað geymslu þessara skotvopna með ófullnægjandi hætti þar sem skammbyssurnar tvær og skotfæri voru óaðskilin og ekki í læstum hirslum. Páll vildi ekki tjá sig um dómsmálið við fréttastofu þegar eftir því var leitað í dag. Í mars á síðasta ári sagði hann í viðtali við Fréttablaðið að hann hefði fallið á áfengisbindindi, en þá var hann búinn að vera edrú í á þriðja tug ára. „Ég er búinn að taka á mínum málum en það sem er sárast fyrir mig er að hafa fallið eftir tæplega 26 ára edrúmennsku," sagði Páll og bætti við: „Þó að þetta hafi skeð þá vita þeir sem til þekkja að kallinn er alveg í lagi. Ég vil þakka fyrir þann stuðning og skilning sem ég hef fengið í þessu máli, hann hefur verið ótrúlegur og hefur komið mér á óvart."
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira