Stjórnarandstaðan studdi 90 prósenta lánin Hjörtur Hjartarson skrifar 4. júlí 2013 19:04
Lögin um 90 prósenta lánin frá íbúðalánasjóði voru samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi í desember 2004. Í skýrslu rannsóknanefndar um sjóðinn segir að grunnurinn að ógæfu Íbúðalánasjóðs hafi verið lagður með lagabreytingunni. "Algjörlega ósammála þessu mati skýrsluhöfunda", segir Ögmundur Jónasson sem studdi frumvarpið. Kosningaloforð Framsóknarflokksins í aðdraganda kosninganna 2003 um að hækka veðhlutfall almennra lána úr 65 prósentum í 90 prósentum var sett inn í stjórnarsáttmála Framsóknar og Sjálfstæðisflokks og varð á endanum að lögum í desember 2004. Nokkrum mánuðum fyrr hafði húsbréfakerfið verið lagt niður og íbúðakerfið tekið upp. Um þessar ákvarðanir segir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, "þessi vegferð endaði illa og varð þjóðinni dýrkeypt." Þrátt fyrir þessa gagnrýni var góður samhljómur á Alþingi þegar kom að breytingum um útlánareglur sjóðsins, haustið 2004. Stjórnarandstaðan studdi frumvarp Árna Magnússonar, félagsmálaráðherra. Grípum niður í ræðubrot nokkurra þingmanna: Jóhanna Sigurðardóttir, nóvember, 2004 "Ég heiti hæstvirtum ráðherra stuðningi í því að afgreiða þetta mál fljótt og vel í nefndinni þannig að hægt verði að fara fyrr í hækkun á lánshlutfallinu, í 90%. Þetta hefur engin áhrif á verðbólguna eða þensluna." Steingrímur J. Sigfússon, desember 2004 "Aðalatriði þessa máls er að hér er verið að taka skref í rétta átt."Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri Grænna tók einnig til máls. Hann taldi rétt að samþykkja frumvarpið en jafnframt stíga skref í þá átt að hækka þá lánsfjárhæð sem viðskiptavinum Íbúðalánasjóðs bauðst á þessum tíma. Ögmundur segist standa við þessi orð sín í dag enda telur hann skýrsluhöfunda ofmeta þátt 90 prósenta lánanna í vandræðum Íbúðalánasjóðs. "Ég er algjörlega ósammála því. Ég er það núna og hef alltaf verið." Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að þessar ákvarðanir hafi leitt til mikillar þenslu, hækkandi fasteignaverðs og verðbólgu. "Það er algjörlega bankanna að bera ábyrgð á því", segir Ögmundur. " Það eru þeir sem kyntu undir bálið. Það voru þeir sem undirbuðu Íbúðalánasjóð. Það voru þeir sem buðu öllum 90 prósenta lán. En sökin sem liggur hjá Íbúðalánasjóði er að hafa gert ákveðin hagstjórnarleg mistök við öflun lánsfjár og síðan lánað bönkunum til þess að keppa við hann sjálfan."
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Sjá meira