Gullkaupmaður segir konur á miðjum aldri langstærsta kúnnahópinn Valur Grettisson skrifar 5. júlí 2013 11:39 Sverrir Einar Eiríksson hefur keypt gull frá hruni og segir viðskiptin ganga vel. Hann kannast þó ekki við að viðskiptavinir sínir séu þjófar.
Félag Íslenskra gullsmiða er byrjað að leggja drög að hertari reglum um gullkaup hér á landi í samstarfi við innanríkisráðuneytið meðal annars vegna hættu á að þjófum sé auðveldað að selja þýfi með tilvist slíkra viðskipta. Gullkaupmaður segist fagna hertum reglum, en segir langflesta viðskiptavini sína konur yfir miðjum aldri. Félag Íslenskra gullsmiða vill hertari reglur um gullkaup hér á landi. Formaður félagsins, Arna Arnardóttir, sagði í samtali við fréttastofu að félagið væri byrjað að vinna drög að reglum varðandi gullkaup í samtarfi við innanríkisráðuneytið. Morgunblaðið fjallaði um málið í dag en þar var meðal annars haft eftir Óla Jóhanni Daníelssyni, gullsmíðameistara, að gullkaupmenn bjóði þjófum upp á að losa sig við þýfi. Sverrir Einar Eiríksson hefur keypt gull frá hruni og segir viðskiptin ganga vel. Hann kannast þó ekki við að viðskiptavinir sínir séu þjófar. „Langflestir viðskiptavinir mínir eru konur um og yfir miðjum aldri, allavega svona 95 prósent,“ segir Sverrir Einar og bætir við að skartið sem þær selja sé gamlt og oft brotið eða ónýtt. Þá sé einnig verið að selja skart úr dánarbúum. Sverrir segist ekki greiða fyrir skartið með reiðufé, heldur séu peningarnir lagðir inn á bankareikning viðkomandi. Það auðveldar nokkuð eftirlit, komi upp þjófnaðarmál. En eru gullkaupmenn mótfallnir því að herða reglur um þessi viðskipti? „Það er ágætt að fá ramma utan um öll viðskipti, en það má ekki verða þannig að það bitni á viðskiptavinunum,“ segir Sverrir. Spurður hvort Sverrir hafi keypt þýfi, segist hann aðeins einu sinni hafa orðið var við að þjófar reyndu að selja honum illa fengna skartgripi: „En ég áttaði mig á því og sagði hinum sama að hypja sig og koma aldrei aftur,“ segir Sverrir og bætir við að hann hafi ekki orðið var við það aftur að þjófar hafi reynt að selja honum þýfi.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira