Kanínur skotnar á færi á Selfossi 7. júlí 2013 13:35 "Það eru ráðnir menn sem munu fara um og skjóta kanínur.“ Mynd/365
Umhverfisráðuneytið hefur gefið Sveitarfélaginu Árborg leyfi fyrir að drepa kanínur á Eyrarbakka og á Selfossi en kanínur hafa fjölgað sér gríðarlega mikið á þessum tveimur stöðum og valda miklu tjóni í görðum fólks og víðar. Kanínurnar verða skotnar á færi. Kanínur eru að verða mikið vandamál á Selfossi og Eyrarbakka og fara þær í taugarnar á mörgum en aðrir elska þær og vilja alls ekki að farið verið í herferð gegn þeim. Kanínur fjölga sér mjög hratt. Nú hefur fengist leyfi til að drepa hluta af kanínunum í sumar. Ásta Stefánsdóttir er bæjarstjóri í Árborg. „Við erum búin að fá heimild frá Umhverfisráðuneytinu til þess að fara í það að fækka kanínum. Þær hafa vaðið uppi hér á Selfossi og Eyrarbakkar og valdið tjóni í görðum hjá fólki. Það er mikill fjöldi af kanínum þannig að við fengum heimild til þess að fara í átak til að fækka þeim,“ segir Ásta.Hvernig átak er það? „Það eru ráðnir menn sem munu fara um og skjóta kanínur.“Er þetta mikið magn sem á að skjóta? „Já, við fórum í svona átak í fyrra og þá náðust eitthvað um hundrað dýr - sem okkur þótti svolítið lítið en við erum að vonast til að ná betri árangri núna. Enda er þetta orðnir hvimleiðir gestir sem eru farnir að angra fólk verulega.“En hvernig angra kanínurnar íbúa á Eyrarbakka og Selfossi? „Þær eru að fara í garða og skemma gróður og þess háttar. Það er líka þekkt að kanínur geta valdið spjöllum húsum, þær geta skemmt lagnir og grafið sig undir hús. Það þarf að stemma stigu við þessu.“Og verða þær bara skotnar á færi? „Já, það er nú bara þannig.“Og allt í lagi með það? „Já þetta er sú leið sem er áhrifaríkust, það er ekki gott að leggja út eitur eða þannig því það geta hvaða dýr sem er farið í það. Það hefur ekki gefist vel að nota gildur, þannig þetta er nú bara leiðin hvað svo sem mönnum kann að finnast um það,“ segir Ásta að lokum.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira