Rafmagnsvespur verða skráningarskyldar Ingveldur Geirsdóttir skrifar 30. júní 2013 19:30
Léttar rafmagnsvespur sem sjást nú víða á göngustígum verða skráningarskyldar og sérstök réttindi þarf til að aka þeim ef ný umferðarlög taka gildi. Mörg dæmi eru um misnotkun á þessum tækjum. Eins og stendur falla rafmagnsvespur sem komast upp í 25 kílómetra hraða undir sama flokk og reiðhjól í umferðarlögum. Ný umferðarlög verða líklega lögð fyrir Alþingi í haust og ef þau fara í gegn mun reglugerðin í kringum vespurnar verða strangari. „Þær verða skráningarskyldar, það þarf að tryggja þær og það þarf sérstök réttindi til að aka þeim," segir Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Einar segir að þau lög sem gildi núna um rafmagnsvespur séu barns síns tíma, þær séu skilgreindar sem reiðhjól og lúti sömu reglum og þau að því undanskyldu að það má eingöngu aka vespunum á gangstígum. En með nýju lögunum mega vespurnar fara af gangstígum og út í almenna umferð þar sem er fimmtíu kílómetra hámarkshraði eða minni. „Það hefur í rauninni verið ákveðið regluleysi varðandi þessi tæki. Ég held að það verði komið betri skikki á það hvernig þessi tæki eru notuð og að það stafi ekki hætta af. En því skal haldið til haga að þessi tæki eru stórsniðug, það er alveg óhætt að hvetja fólk til að nota þau en það skiptir máli að þau séu notuð rétt og að það stafi ekki hætta af notkun þeirra." Einar segir að það séu því miður ansi mörg alvarleg dæmi um misnotkun á vespum og margar ábendingar um slíkt komi inn á borð Umferðarstofu. Eigendur vespa gleymi stundum að líta á þær sem ökutæki. „Við heyrum af því að börn séu á þessu reiðandi hvert annað, jafnvel fleiri en tvö, en það er bannað að vera fleiri en einn á þessu. Að það sé verið að keyra mjög óvarlega innan um gangandi vegfarendur, það er ekki gætt að reglum varðandi rautt ljós og stöðvunarskyldu og svo framvegis," segir Einar.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira