"Þetta er vandamál í okkar fámenna samfélagi“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. júní 2013 18:39
Mikil samþjöppun á íslenskum fjölmiðlamarkaði ógnar fjölbreytni í efnisframboði, að mati Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Stofnunin telur í nýrri skýrslu að stjórnvöld eigi að íhuga frekari ráðstafanir til að takmarka samþjöppun og koma í veg fyrir einokun og hagsmunaárekstra. Fjallað er um málið í nýrri skýrslu lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunarinnar um þingkosningarnar á Íslandi hinn 27. apríl sl. Sérstakur kafli er helgaður fjölmiðlum í skýrslunni og umfjöllun fjölmiðla um þingkosningarnar. Þar segir að íslenskir fjölmiðlar hafi boðið upp á mikla og upplýsandi umfjöllun um kosningarnar.Skoða þarf ráðstafanir til að sporna gegn samþjöppun Fjallað er um samþjöppun á eignarhaldi íslenskra fjölmiðla og fram kemur að í í ljósi mikilvægis fjölbreytni fjölmiðla í lýðræðislegum kosningum mætti skoða frekari ráðstafanir til að takmarka samþjöppun í eignarhaldi fjölmiðla hér á landi, svo sem ákvæði til að takmarka hagsmunaárekstra og hringamyndun og innleiðingu reglna sem hafa það að markmiði að takmarka áhrif sem ein manneskja, eitt fyrirtæki eða hópur kann að hafa á einum eða fleiri fjölmiðlamörkuðum. Umræða um samþjöppun á eignarhaldi íslenskra fjölmiðla er ekki ný af nálinni. Í raun hefur hana borið á góma með reglulegu millibili undanfarin tíu ár eða svo. Aldrei hefur þó verið gengið jafn langt til að sporna gegn samþjöppun á eignarhaldi og árið 2004, en ný löggjöf um eignarhald á fjölmiðlum komst aldrei til framkvæmda þar sem forseti beitti 26. gr. stjórnarskrár og synjaði lögunum staðfestingar. Alþingi felldi lögin síðan úr gildi og kom þannig í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.Illugi, þarf ekki að sporna gegn samþjöppun á eignarhaldi íslenskra fjölmiðla? „Þetta hefur verið vandamál lengi. Ég hef nú verið með í því einu sinni að reyna að takast á við þetta þegar Davíð Oddsson var forsætisráðherra. Hann sá þennan vanda koma upp og hversu alvarlegur hann var. Þá fórum við fram með fjölmiðlalögin. Því miður stoppaði það allt saman," segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. Ráðherrann vill ekki svara því beint út hvort ríkisstjórnin muni beita sér fyrir því að sporna gegn þessari samþjöppun með löggjöf. „Þetta er vandamál í okkar fámenna samfélagi og ég held að við leysum þetta aldrei algjörlega, en þessi ábending segir okkur að við þurfum að halda vöku okkar."Hvað finnst þér sjálfum um málið, burtséð frá stefnu núverandi ríkisstjórnar? Ætti löggjafinn að beita sér með lagasetningu til að sporna gegn samþjöppun á eignarhaldi fjölmiðla? „Ég er þeirrar skoðunar að það sé ástæða fyrir stjórnvöld, á hvaða tíma sem er, að hafa augun mjög opin gagnvart þessu."
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira