Skattamál Dorritar til umfjöllunar Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. júní 2013 19:43
Skattamál Dorritar Moussaieff forsetafrúar hafa verið til umfjöllunar í fjármála- og efnahags-ráðuneytinu. Ráðuneytið hefur synjað fréttastofunni um aðgang að upplýsingum um málið Skattamál Dorritar Moussaieff forsetafrúar hafa vakið mikla athygli og umræðu hér á landi eftir að Fréttablaðið greindi frá því að forsetafrúin hefði flutt lögheimili sitt til Bretlands. Áður hafði Viðskiptablaðið greint frá því í ágúst í fyrra að forsetafrúin greiddi enga skatta á Íslandi. Fréttastofa fékk upplýsingar að skattamál Dorritar hefðu verið til sérstakrar meðferðar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, án þess að fyrir lægi hvers eðlis mál hennar væri þar. Fréttastofan óskaði eftir upplýsingum um málið í krafti upplýsingalaga. Svar barst frá ráðuneytinu í dag þar sem fréttastofu var tilkynnt að ekki verði veittar upplýsingar um mál forsetafrúarinnar þar sem um sé að ræða fjárhagsmálefni einstaklings sem séu undanþegin aðgangi almennings á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga, en þar segir að óheimilt sé að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Fréttastofan fór sérstaklega fram á afhendingu hluta skjals ef eitthvað í því væri undanþegið aðgangi, en ekki var tekin afstaða til þess í svari ráðuneytisins. Í hnotskurn, skattamál Dorritar er til meðferðar í fjármálaráðuneytinu, en ráðuneytið getur ekki upplýst um hvað það snýst. Synjun ráðuneytisins er kæranleg til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira