"Sömu kröfur og á hinum Norðurlöndunum" Jóhannes Stefánsson skrifar 28. júní 2013 12:43 Rósa Björk Brynjólfsdóttir innti menntamálaráðherra svara um breyttar lánareglur LÍN á Alþingi í dag.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir að eftir breytingar á útlánareglum LÍN verði reglurnar sambærilegar við útlánareglur hinna Norðurlandanna. Þá verða námsframvindureglur þær sömu og tíðkaðist til ársins 2007. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, varaþingmaður Vinstri Grænna, innti Illuga um svör við því hvers vegna reglunum hefði verið breytt. „Stjórnarformaður LÍN og hæstvirtur mennta- og menningarmálaráðherra staðfesta að gerð verði krafa um að námsárangur verði 75% í stað 60%." Illugi svaraði þá: „Ég ítreka, það er lagt upp með það að námsframvindukrafan verði sú sama og árið 2007. Það er lagt upp með það að námsframvindukrafan verði eins og þekkist á Norðurlöndum. Það lagt upp með það, virðulegi forseti, að grunnframfærslan verði aukin, þannig að námslánin verði hækkuð. Það er það sem skiptir máli fyrir stúdentana að verði gert."Segir fyrirvarann of skamman Rósa gerði athugasemdir við skamman fyrirvara á breytingunum. „Ætlar hann að ganga gegn góðri stjórnsýslu í þessu frumvarpi sínu og koma í veg fyrir að námsmenn fái nægan fyrirvara eins og þeir eiga rétt á, eða ætlar hæstvirtur mennta- og menningarmálaráðherra ásamt stjórnarformanni LÍN að gefa ungu námsfólki falleinkunn." Rósa lét ekki þar við sitja heldur sagði hún Illuga Gunnarson og Jónas Friðrik Jónsson, stjórnarformann LÍN „þekkja það á eigin skinni hvernig er að fá falleinkunn í einni viðamestu úttekt á íslensku samfélagi." Illugi sagði þá: „Auðvitað vildi ég hafa lengri tíma, virðulegi forseti, til að bregðast við þessu. En ríkisstjórnin tók við á þeim tíma sem hún tók við á. Það hafa verið hafðar hraðar hendur og snör handtök til að bregðast við. Þetta er niðurstaðan."
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira