Bó sagður standa á bak við ofsóknir á hendur Leoncie Jakob Bjarnar skrifar 10. júní 2013 10:43 Leoncie telur engan vafa á leika að maðurinn á bak við ofsóknir á hendur henni er Bó Hall. "Lýsingin afleit, og auðvitað röng," segir Bó.
Leoncie var í frísklegu útvarpsviðtali við þá Frosta Logason og Þorkel Mána í Harmageddon í morgun og kom víða við. Meðal annars heldur hún því fram að maðurinn á bak við viðvarandi fordóma í sinn garð sé Björgvin Halldórsson. Leoncie lét vaða á súðum í viðtalinu. Hún kom fram á Keflavík Musik Festival fyrir ári og sagði allt hafa gengið að óskum; allur aðbúnaður hafi verið til fyrirmyndar en talsvert fjaðrafok hefur verið vegna hátíðarinnar núna og eru þeir aðstandendur, Óli Geir og Pálmi Þór, ekki hafa staðið við gerða saminga. Leoncie segir þetta dæmigerðan væl í ríkisstyrktum tónlistarmönnum. Og spyr, ef þeir séu svona góðir og þeir vilja vera láta af hverju þeir geti þá ekki framfleytt sér sjálfir án ríkisstyrkja. Hvaða bankastjóri sem er myndi henda þeim öfugum út, kæmu þeir á fund bankanna og færu fram á rekstrarlán. Sögunni víkur þaðan að gengi hljómsveitarinnar Sigur Rósar, sem Leoncie segir svo mikið drasl að hún hreinlega gubbi heyri hún í þeim. Þeir steli öllu steini léttara úr indverskri tónlist. Og geri það illa. En mestum tíðindum hlýtur að sæta frásögn Leoncie er varðar Björgvin Halldórsson. Hún segir svo frá að Viktor, maður hennar, hafi verið umboðsmaður hennar um hríð. Viktor reyndi að koma Leoncie að á einhverjum af þeim sjö skemmtistöðum sem Ólafur Laufdal átti á sínum tíma. Þar var fyrir Björgvin, skemmtanastjóri Ólafs, og hann ekki bara útilokaði hana með öllu heldur lagði stein í götu hennar við öll tækifæri. Og er í raun upphafsmaður þess rasisma sem hún hefur mátt sæta á Íslandi. Íslenskir tónlistarmenn hafi í raun beitt nytsömum sakleysingjum gegn sér; kynþáttahöturum. Leoncie hefur nú búið á Englandi í átta ár og er ekki á leiðinni til baka, þó íslenskur ríkisborgari sé.Uppfært 13:30 "Ja, hérna… Björk er vangefinn mongólíti, Sigur Rósar-menn eru þjófar, og ég er rasisti. Verð að játa að félagsskapurinn er góður en lýsingin afleit, og auðvitað röng," segir Björgvin Halldórsson en vill að öðru leyti ekki tjá sig um þessar krassandi ásakanir Leoncie.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira