Ofurhugi í háska: "Það vissi enginn hvort hún væri lífs eða liðin" Kristján Hjálmarsson skrifar 10. júní 2013 11:50 "
Þetta var hrikalegt meðan á því stóð. Hún stökk fram af hótelinu en hefur sennilega ekki stokkið nógu langt og lenti þess vegna utan í byggingunni," segir Sóldís Elfa Loftsdóttir sem varð vitni að því þegar fallhlífarstökkvari lenti í miklum háska þegar hann stökk fram af Hótel Bali á Benidorm á föstudaginn var. Hópur fallhlífastökkvara, sem stunda svokallað "base jump", gerði sér það að leik að stökkva fram af þaki Bali-hótelsins, sem er 53 hæðir. Stökk Mariu Steinmayr frá Austurríki fór hins vegar ekki eins og áætlað var og skall hún tvisvar harkalega utan í hótelbyggingunni. "Hún kipptist að hótelinu og lenti utan í byggingunni. Hún spyrnti sér svo frá en lenti aftur utan í og komst loksins inn á svalir á 12. hæð," segir Sóldis Elfa. "Það vissi enginn hvort hún var lífs eða liðin." Að sögn Sóldísar Elfu hlupu hinir fallhlífarstökkvararnir til að leita að Mariu. Það tók dágóða stund því þeir vissu ekki á hvaða svölum hún var. "Eftir tuttugu mínútur eða svo komu þeir svo með hana út í hjólastól og hélt utan um hendina. Hún var sennilega handleggsbrotin," segir Sóldís Elfa. Eins og gefur að skilja var fólkinu sem fylgdist með brugðið. "Það var mjög óþægilegt að horfa á þetta. Það voru allir með öndina í hálsinum. Þetta átti að vera skemmtun en breyttist næstum því í harmleik. Ég var að taka þetta upp á myndavélina en slökkti um leið og hún lenti utan í. Ég vildi ekki eiga þetta á myndbandi ef illa færi," segir Sóldís Elfa. Atvikið átti sér stað degi áður en hjónin flugu aftur heim til Íslands. "Það voru allir mjög fegnir því að sjá hana koma út í hjólastólnum. Þetta fór betur en á horfðist. Ég væri sennilega enn í sjokki ef ég hefði ekki séð hana koma út."
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira