Hætt verði að framleiða raforku fyrir álver með jarðvarmavirkjunum Jóhannes Stefánsson skrifar 10. júní 2013 13:33 Guðmundur Hörður Guðmundsson vill að hætt verði við áform um virkjanir á jarðvarmasvæðum. Mynd/ Vilhelm
Landvernd hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta af Hellisheiðarvirkjun þar sem meðal annars kemur fram að hætta eigi rafmagnsframleiðslu á jarðhitasvæðum til álvera og annarra orkufrekra framkvæmda. „Þá erum við helst að tala við þetta ætlaða Helguvíkur álver sem mun krefjast mikillar jarðvarmanýtingar á Reykjanesskaga,“segir Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar.Hafa áhyggjur af áhrifum á heilsufar Landvernd telur einnig að ekki eigi að ráðast í neinar frekari jarðvarmavirkjanir fyrr en búið verði að tryggja á fullnægjandi hátt að brennisteinsmengun hafi ekki áhrif á heilsu fólks og að gengið verði frá vandamálum tengdum förgun affallsvatns frá virkjunum. „Það hafa komið fram vísbendingar um að brennisteinsvetnismengun hafi áhrif á heilsu fólks. Notkun á astmalyfjum eykst þegar brennisteinsvetnismengun mælist há á höfuðborgarsvæðinu. Það bendir allt til þess að brennisteinsvetnismengun hafi áhrif á fólk sem eru með astma og þessháttar. Það er aðallega það sem við erum að vísa í. Svo vantar bara mjög upp á rannsóknir í nágrenni við svona mikið þéttbýli þannig að það er verið að gera ákveðna tilraun sem við sjáum ekki fyrir endann á og hefði þurft að rannsaka betur áður," segir Guðmundur. Þá hefur Landvernd áhyggjur af því hvaða áhrif affallsvatn kann að hafa á umhverfið eftir að því er dælt upp. „Þegar menn nýta jarðvarma kemur vatn upp úr jörðinni. Þetta vatn er mengað með allskonar eiturefnum úr jarðlögunum. síðan þarf að losa sig við þetta vatn. Vatninu er dælt niður aftur, en það hefur ekki gengið nógu vel. Vatnið seytlar þarna niður í hraunið og menn hafa áhyggjur af því að þetta kunni að hafa áhrif á grunnvatn," Guðmundur segir áhyggjuefni Landverndar þó fyrst og fremst lúta að því að margir óvissuþættir séu uppi og í ljósi þess sé ekki skynsamlegt að ráðast í frekari virkjanir á jarðvarma.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira