Tugir manna við leit í nótt Heimir Már Pétursson skrifar 12. júní 2013 07:16 Mikil leit stendur nú yfir eftir að refaskytta féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal.
Umfangsmikil leit að refaskyttu sem féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal eftir hádegi í gær hefur engan árangur borið en tugir leitarmanna voru að störfum í nótt og þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir leitarsvæðið með hitamyndavél í gærkvöldi. Ingólfur Haraldsson í svæðisstjórn björgunarsveitanna segir að um fimmtíu björgunarsveitarmenn hafi tekið þátt í leitinni í nótt. Búið sé að leita í ánni nokkrum sinnum. Björgunarsveitarmenn hafi m.a. gengið upp og niður með ánni. Ingólfur segir menn meðal annars slakað bát í taumi niður með ánni með mönnum um borð með stjaka og krækjur. Þá hafi menn gengið um tvo kílómetra upp og niður með ánni frá þeim stað þar sem síðast sást til mannsins og einnig alla leið niður í árósana og fjörur þar í kring. Bjart hafi verið til leitar í nótt en áin sjálf sé mórauð og mjög straumhörð en rennslið í henni sé um fimm til sjö kílómetrar. Þyrla Landhelgisgæslunnar hafi flogið nokkrum sinnum yfir svæðið í gærkvöldi og leitað með hitamyndavél. Björgunarsveitarmenn úr Eyjafirði og Húnavatnssýslum hafa tekið þátt í leitinni, sem nær yfir allt stórt svæði. Klukkan átta er gert ráð fyrir að þeir björgunarsveitamenn sem nú eru við leit fari í hvíld og aðrir taki við. Í hádeginu verður staðan metin með lögreglu og ákvörðun um framhaldið tekin.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Sjá meira