Bindandi samningur um Norðfjarðargöng í dag Kristján Már Unnarsson skrifar 14. júní 2013 11:11 Vegur og brú að gangamunna Eskifjarðarmegin, samkvæmt tölvumynd verkfræðistofunnar Mannvits.
Skrifað verður undir bindandi verksamning um Norðfjarðargöng í Neskaupstað klukkan hálffjögur í dag. Vegamálastjóri segir að engin skilaboð hafi borist frá ríkisstjórn um að hætta við þetta 9,3 milljarða króna verk. Þetta verði því mikill gleðidagur fyrir austan og framkvæmdir fari strax í gang. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri skrifar undir verksamninginn við fulltrúa verktakanna sem buðu lægst, tékkneska félagsins Metrostav og íslenska félagsins Suðurverks. Athöfnin verður í félagsheimilinu Egilsbúð og opin almenningi og býður sveitarfélagið Fjarðabyggð viðstöddum upp á kaffiveitingar á eftir. Húsið verður opnað kl 15 en að undirritun lokinni, kl. 15.30, verða flutt ávörp. Þar sem fyrri ríkisstjórn hafði tengt fjármögnun Norðfjarðarganga við innheimtu sérstaks veiðigjalds á útgerðina hafa spurningar vaknað um hvort göngin myndu lenda í niðurskurði hjá nýrri ríkisstjórn með lækkun veiðigjaldsins eða vegna boðaðra aðgerða um sparnað í ríkisútgjöldum. Svo virðist ekki vera því vegamálastjóri hafði nú laust fyrir hádegi ekki fengið nein fyrirmæli um að hætta við undirskriftina. Þetta verður því gleðidagur, segir Hreinn Haraldsson, og bætir við að úr þessu verði ekki aftur snúið því þetta sé bindandi verksamningur.Snjómokstur við Oddsskarðsgöng.Mynd/Gunnar V. Andrésson.Hann segir verktakana þegar byrjaða að undirbúa sig með því að flytja tæki á svæðið og þeir hlakki til að takast á við verkið. Þetta er langstærsta verk á vegaáætlun frá hruni, upp á 9,3 milljarða króna. Vegamálastjóri segir verkið taka fjögur ár og að stefnt sé að því að göngin verði opnuð umferð haustið 2017. Norðfjarðargöngin verða sjö og hálfur kílómetri að lengd. Þau leysa af Oddsskarðsgöngin sem eru einbreið og liggja í 630 metra hæð yfir sjávarmáli. Vegurinn að þeim beggja vegna þykir háskalegur, sérstaklega að vetrarlagi.
Tengdar fréttir Kyngja því ekki ef göngin verða skorin niður í haust Tékkneski verktakinn Metrostav ásamt Suðurverki áttu lægsta boð í Norðfjarðargöng, 9,3 milljarða króna. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin ræðst í eftir hrun og vonast vegamálastjóri til að hægt verði að komast í gegn fyrir lok árs 2016. Gömlu Oddsskarðsgöngin þykja barn síns tíma, eru einbreið, liggja í 630 metra hæð yfir sjávarmáli og vegurinn að þeim beggja vegna þykir háskalegur, sérstaklega að vetrarlagi. Nýjum Norðfjarðargöngum, milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar, er ætlað að koma í staðinn en þau verða sjö og hálfur kílómetri að lengd. Þetta er langstærsta verk á vegaáætlun frá hruni og því ríkti eftirvænting í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar þegar tilboð voru opnuð. 16. apríl 2013 20:30 Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Fleiri fréttir Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Sjá meira
Kyngja því ekki ef göngin verða skorin niður í haust Tékkneski verktakinn Metrostav ásamt Suðurverki áttu lægsta boð í Norðfjarðargöng, 9,3 milljarða króna. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin ræðst í eftir hrun og vonast vegamálastjóri til að hægt verði að komast í gegn fyrir lok árs 2016. Gömlu Oddsskarðsgöngin þykja barn síns tíma, eru einbreið, liggja í 630 metra hæð yfir sjávarmáli og vegurinn að þeim beggja vegna þykir háskalegur, sérstaklega að vetrarlagi. Nýjum Norðfjarðargöngum, milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar, er ætlað að koma í staðinn en þau verða sjö og hálfur kílómetri að lengd. Þetta er langstærsta verk á vegaáætlun frá hruni og því ríkti eftirvænting í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar þegar tilboð voru opnuð. 16. apríl 2013 20:30