Eldri manni haldið nauðugum á heimili sínu Hrund Þórsdóttir skrifar 1. júní 2013 18:30
Ráðist var inn á heimili eldri manns í Grafarvogi í dag og honum haldið þar nauðugum. Rannsókn málsins er á frumstigi en allt tiltækt lið lögreglu vann að lausn þess í dag. Maðurinn býr í blokk við Barðastaði í Grafarvogi. Lögreglan hefur staðfest að ruðst var inn hjá honum stuttu eftir hádegið í dag og honum haldið þar nauðugum. Hann er ekki meiddur eftir atvikið, en er eðlilega mjög brugðið. Maðurinn sem varð fyrir árásinni er á sjötugsaldri. Nágranni hans lýsir því á Facebooksíðu sinni að maðurinn hafi bankað upp á hjá honum eftir atburðinn, keflaður á höndum og fótum, og beðið um aðstoð. Einnig er haft eftir nágrönnum að lögreglan hafi skoðað geymslu mannsins eftir atburðinn. Árásarmennirnir hafi líklega verið á höttunum eftir verðmætum sem geymd hafi verið þar, hugsanlega skotvopnum. Lögreglan hefur þó ekki viljað staðfesta þessar upplýsingar. Rannsókn er á frumstigi en lögreglan leggur gríðarlega áherslu á að upplýsa málið og vann allt tiltækt lið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að því seinni partinn í dag. Unnið er út frá vísbendingum sem lögreglan hefur undir höndum og rætt hefur verið við bæði manninn sjálfan og vitni. Þá hefur verið leitað að vísbendingum í hverfinu og talað við fólk í nágrenninu. Málið er á viðkvæmu stigi og lögreglan vill ekki tjá sig um hvort það tengist nýlegum atburðum í undirheimunum.
Mest lesið Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Erlent Fleiri fréttir Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Sjá meira