Menntun fanga minnkar líkurnar á endurkomu þeirra í fangelsi Hjörtur Hjartarson skrifar 5. júní 2013 18:30
Þeir sem stunda nám innan veggja fangelsa eru betur í stakk búnir til að takast á við lífið að afplánun lokinni og mun ólíklegri til að brjóta af sér á nýjan leik. Þetta segir afbrotafræðingur hjá fangelsismálastofnun. Alþjóðleg ráðstefna um menntun fanga hófst hér á landi í dag og stendur fram til laugardags. Ráðstefnan er haldin á vegum European Prison Education Association eða EPEA. Um 120 þátttakendur frá 27 ríkjum sækja ráðstefnuna. Meginþema ráðstefnunnar er áherslu á hvernig haga beri undirbúningi fanga fyrir þátttöku í frekara námi og atvinnulífi að afplánun lokinni með það að markmiði draga úr endurkomu fanga í fangelsi. Aukin áhersla hefur verið lögð á þennan þátt fangelssistarfseminnar hér á landi á síðustu árum með góðum árangri. „Það sem fangar hafa nóg af er tími. Þeir eru jú, inni í 24 tíma á sólahring. Og ef þeir geta notað hluta af þessum tíma í að mennta sig, til þess að læra, til þess að stunda einhverja meðferð til að læra á lífið þegar þeir koma út, ef þeir koma út rólegri og prúðari menn út, þá er ekki lítið unnið fyrir þá sjálfa, fyrir skattborgara og fyrir almenning í landinu,“ segir Erlendur S. Bjarnason, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun. Þráinn Bjarnason Farestveit, framkvæmdarstjóri Verndar fangahjálpar er einn þeirra sem mun flytja erindi á ráðstefnunni. Hann segist þekkja fjölmörg dæmi þess að fyrrverandi fangar þakki námi sínu fyrir það að hafa komist á beinu brautina á ný. „Ég finn klárlega mun á bæði hvað varðar sjálfsvirðingu og betra sjálfsmat hjá þeim einstaklingum sem farið hafa í gegnum þetta heldur en hjá hinum. Þeir eiga kannski erfiðara með að fóta sig og átta sig kannski á því hvert stefna þeirra er í lífinu. Það er alveg klárt mál. Það er allt sem bendir til þess að þeir sem stunda nám eigi betri möguleika úti í samfélaginu heldur en hinir,“ sagði Þráinn.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira