Skokkhópur "sló skjaldborg um tryppið" Jóhannes Stefánsson skrifar 7. júní 2013 13:20 Gleði frá Ártúni slapp úr girðingu og skokkararnir hjálpuðu til við að fanga hann. Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd/ Getty
Fjölmennt lið lögreglu var sent í Ártúnsbrekkuna eftir að hestur sást þar á beit í vegkantinum. Skokkhópur sem átti leið hjá aðstoðaði lögreglu við að fanga hestinn. Um var að ræða merina gleði frá Ártúni sem slapp úr girðingu á Árbæjarsafninu en lögreglu gekk greiðlega að handsama hana og koma aftur til síns heima með aðstoð skokkhóps sem átti leið hjá vettvanginum. Engin slys urðu á fólki, hesturinn er ómeiddur og engar tafir urðu á umferð vegna atviksins. Ólafur H Knútsson varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir hrossið hafa verið á beit við Rafstöðvarveg: „Hann var á beit bara þarna við Ártúnsbrekkuna neðan við kartöflugeymsluna þar sem beygt er af Ártúnsbrekku og inn á Rafstöðvarveg. Þar er svona smá horn sem er með trjám og hann var þar. Mesta hættan var náttúrulega að hann hlypi inn á Ártúnsbrekku,“ segir Ólafur. Lögreglumenn á vakt voru sendir á vettvang en skokkhópur kom á vettvang og aðstoðaði lögreglu: „Þeir fóru strax í það að koma í veg fyrir að hrossið hlypi út í morgunumferðina. Það var mesta hættan. Þessi skokkhópur slógu bara skjaldborg utan um tryppið." Aðspurður að því hvort einhverjar tafir hafi orðið á umferð segir Ólafur: „Það urðu engar tafir á umferð, hann er kominn inn í girðingu."
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira