Íslenskur nemi vitni að ráninu: "Ég vona bara að þeir hafi ekki meitt neinn" Stígur Helgason skrifar 7. júní 2013 14:11 Vegfarendur handsömuðu tvo ræningjanna en hinir komust undan. Jórunn segist heppin að hafa ekki orðið fyrir meiðslum. „
Við erum bara heppnar að hafa ekki verið komnar lengra inn í búðina þegar þetta gerðist. Maður veit aldrei hvað svona menn gera og hvort þeir voru heilir í hausnum – þeir voru það pottþétt ekki," segir Jórunn Káradóttir, 24 ára arkitektúrnemi í London, sem var viðstödd ránið í versluninni Selfridges í miðborg London í gær, þar sem hópur búrkuklæddra karlmanna ruddist inn, braut glerborð með öxum og höfðu á brott með sér mikið magn af skartgripum. Jórunn segist hafa verið grunlaus á gangi með breskri skólasystur sinni á veitingatorgi verslunarinnar, þar sem engin öryggisgæsla sé, enda engu að stela. „Þá ýtir einhver við mér og er augljóslega mikið að flýta sér inn. Ég lít við og sé að viðkomandi er í búrku og það sést ekki í neitt nema augun. Samt var þetta greinilega karlmaður, í joggingbuxum og karlmannsskóm,“ segir Jórunn. „Síðan kemur annar hinum megin við mig og heldur á risastóru barefli. Svo mæta þrír í viðbót og þeir eru allir í búrkum. Einn þeirra heldur á einhverju undir búrkunni.“ Jórunn segir að fyrst um sinn hafi sárafáir tekið eftir nokkru óeðlilegu. „Fljótlega var fólk farið að veita þessu athygli og ég stoppaði bara og fraus af því að þetta var auðvitað ekki eðlilegt. Starfsmaður spurði mig hvort þetta hefðu ekki örugglega verið karlmenn, og ég sagði jú og bætti við að þeir væru pottþétt að fara að ræna búðina. Þá „panikkuðu“ allir og hlupu út. Nokkrum mínútum seinna voru vopnaðar löggur alls staðar.“ Jórunn stökk á flótta eins og aðrir og eftirleikinn þekkir hún lítið nema þá helst úr fjölmiðlum. „Við löbbuðum reyndar aftur þarna fram hjá seinna og þá sáum við barnavagn á hvolfi og glerbrot alls staðar. Ég vona bara að þeir hafi ekki meitt neinn.“ Hún segist búin að jafna sig þótt lífsreynslan hafi að sjálfsögðu fengið á hana. „Þetta er svolítið sjokk, svona eftir á. Maður spyr sig: Var þetta í alvörunni að gerast?“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið.“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira