Léttvínsflaskan allt að fjórum sinnum dýrari á veitingastöðum Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 9. júní 2013 18:30
Verð á léttvíni getur verið rúmlega 400% hærra á veitingastað en í vínbúðum. Þetta leiðir athugun fréttastofu í ljós en stjórnarmaður í Vínþjónasamtökum Íslands segir álagninguna langt frá því eðlilega. Fréttastofa kannaði verð á ellefu tegundum af léttvíni á fjórum veitingastöðum í borginni og athugaði þann mun sem er á verðunum á stöðunum og í vínbúðunum. Lægsta álagningin var 194% en fimm tegundir voru með um og yfir 400%. Kaupirðu til dæmis Lagunilla Gran Reserva í Vínbúðunum borgarðu 2.999 kr. fyrir en 11.500 kr. á veitingastað og gerir það hækkun upp á 383%. Flösku af ítölsku rauðvíni færðu á 1.599 kr. í Vínbúðunum en borgar 5.400 kr. fyrir sömu flösku á veitingastað og er sú hækkun 388%. Síðast má nefna þýska hvítvínstegund sem fæst í Vínbúðunum á 2795 kr. en skellirðu þér á slíka flösku á veitingastað verðurðu 11.500 kr. fátækari. Það er hækkun upp á 411%. Þorleifur Sigurbjörnsson, stjórnarmaður í Vínþjónasamtökum Íslands, segir þessa háu álagningu ekki eðlilega og að hann hafi sjálfur ekki tekið eftir svo hárri álagningu á veitingastöðum. Jóhannes Gunnarsson, formaður neytendasamtakanna, sagði í samtali við fréttastofu í dag, að álagning áfengis á veitingahúsum sé að sjálfsögðu frjáls. Hann segir að hátt verð sé því löglegt en að ósiðlegt sé hversu hátt veitingamenn leyfa sér að fara. Hann mælir með að neytendur láti ekki bjóða sér hvað sem er í þessum efnum og þar komi inn að aðhald neytendans er mjög mikilvægt. Fréttastofa hefur rætt við nokkra veitingamenn sem segja að misjafnt sé hvort sanngirni sé höfð að leiðarljósi þegar léttvín eru verðlögð á veitingastöðum. Einn sagði það gríðarlega dýrt að reka veitingastað og því þurfi verð á víni að vera fremur hátt og bætti því við að fólk sé tilbúið til að borga fyrir vínið. Spurningin er því sú hvort fólk geri sér grein fyrir hver álagningin er. Þorleifur telur að meirihluti neytenda geri sér ekki grein fyrir þessari háu álagningu þó svo að það séu alltaf einhverjir sem þekki vín og viti hvað þau kosti úr Vínbúðunum.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira