Bjartsýnn á að ný ríkisstjórn verði kynnt í þessari viku Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 13. maí 2013 18:40
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er bjartsýnn á að það takist að mynda ríkisstjórn á næstu dögum. Hann vill lítið tjá sig um hvernig samið verði um einstök málefni líkt og skuldamál heimilanna. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman í Valhöll í dag þar sem formaðurinn fór yfir hvernig stjórnarmyndunarviðræðurnar ganga. Bjarni er bjartsýnn á að ný ríkisstjórn geti orðið að veruleika á næstu dögum. „Okkur hefur orðið mjög ágengt á þessari viku sem að liðin er frá því að formlegar viðræður hófust. Ég er svona farinn að sjá fyrir endann á samræðum flokkanna um málefnin og þá taka við svona önnur atriði, svona við gætum kallað það praktískari atriði í samstarfinu, ég ætla ekki að lofa neinum dagsetningum en miðað við það hvernig gengur undanfarna viku þá er bjartsýnn á að dagarnir framundan í þessari viku muni nýtast okkur mjög vel til þess að klára þetta," segir Bjarni. Bjarni segir að skuldamál heimilanna hafi verið rædd á fundum sínum og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins um helgina. Ágætar líkur séu á að flokkarnir geti náð saman um þau. Hann vill þó ekkert segja um hvaða leiðir sé líklegt að ákveðið verði að fara. „Nú verðum við að leyfa flokkunum tveimur að ná endanlega saman um niðurstöðu og það er ekki orðið tímabært að útala sig um hvað verður gert eða hvenær fyrr en menn hafa klárað vinnuna." Vilji er meðal sjálfstæðismanna til að breyta veiðileyfagjaldinu strax á þinginu sem kemur saman í sumar samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hafa þeir Bjarni og Sigmundur rætt fjölgun ráðherra og aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið. Bjarni segir þó ekki tímabært að tjá sig þau mál strax. Þá segir Bjarni skattamál hafa verið rædd í viðræðunum og komið verði inn á þau í stjórnarsáttmála flokkanna. „Báðir flokkar leggja mikla áherslu á að einfalda skattkerfið og svona greiða fyrir með skattalegum aðgerðum framkvæmdum og framförum í landinu.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira