Innlent

Ísland komst áfram

Það er ljóst að mörg Eurovision-partý verða víða um land á laugardagskvöldið því okkar maður Eyþór Ingi Gunnlaugsson komst upp úr seinni undanriðlinum í Malmö í Svíþjóð í kvöld.

Flutningur Eyþórs Inga á laginu Ég á líf var hreint út sagt stórkostlegur og lýstu margir Íslendingar því á Twitter að þeir hefðu fengið gæsahúð yfir flutningnum.

Eyþór var gríðarlega öruggur í söng sínum og framkomu og uppskar mikil fagnaðarlæti í Malmö Arena og út um allt Ísland eftir flutninginn.

„Ég er þakklátur fyrir að fá að syngja aftur á laugardag. Og geri það jafnvel betur en í kvöld,“ sagði Eyþór Ingi á blaðamannafundi eftir keppnina.

Ísland var sjötta landið sem kom upp úr umslögunum fyrir úrslitin og voru eflaust margir farnir að naga sig í handabökunum.

Öll Norðurlöndin keppa í úrslitunum: Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Finnland og Ísland.

Af þeim sautján löndum sem kepptu í kvöld komust tíu áfram. Þau eru:

  • Ungverjaland

  • Aserbaídjan

  • Georgía

  • Rúmenía

  • Noregur

  • Ísland

  • Armenía

  • Finnland

  • Malta
  • Grikkland
Aðalkeppnin á laugardag
Hópurinn fagnaði innilega ásamt öðrum sem komust áfram á sviðinu í lok útsendingarinnar í kvöld.Mynd/Helgi Jóhannesson

Aðalkeppnin fer fram í Malmö Arena á laugardagskvöld. Hún hefst klukkan 19 og stendur útsendingin til 22.15.

Ljóst er hvaða 26 lönd taka þátt í, tíu frá hvoru undanúrslitakvöldi og sex sem fara beint í aðalkeppnina.

Á blaðamannafundinum í kvöld drógu keppendur í hvorum hluta útsendingarinnar á laugardag lögin verða flutt. Eyþór dró seinni helming keppninnar.

Framleiðendur útsendingarinnar gáfu út á föstudagsmorgun röð laganna í aðalkeppninni.

Lögin koma fram á laugardag í þessarri röð:

  1. Frakkland
  2. Litháen
  3. Moldóvía
  4. Finnland
  5. Spánn
  6. Belgía
  7. Eistland
  8. Hvíta-Rússland
  9. Malta
  10. Rússland
  11. Þýskaland
  12. Armenía
  13. Holland
  14. Rúmenía
  15. Bretland
  16. Svíþjóð
  17. Ungverjaland
  18. Danmörk
  19. Ísland
  20. Aserbaídjan
  21. Grikkland
  22. Úkraína
  23. Ítalía
  24. Noregur
  25. Georgía
  26. Írland



Á föstudagskvöld var einnig gefinn út listinn yfir það í hvaða röð öll löndin 39 sem tóku þátt í keppninni. Íslenski þulurinn María Sigrún Hilmarsdóttir mun vera sú 29. í röðinni til að lesa upp.

Á blaðamannafundinum í kvöld voru þeir sem komust áfram látnir draga um það í hvorum helmingi keppninnar á laugardag þeir koma fram. Eyþór dró seinni helming og var sáttur með það.



Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lögin sem keppa á laugardaginn í YouTube-lista.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×