Kvikmyndasafnið harðneitar að deila húsnæði með Gaflaraleikhúsinu 2. maí 2013 16:01 Bæjarbíó í Hafnarfirði.
Erlendur Erlendsson, forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands, gagnrýnir harðlega ákvörðun menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar, um að ganga til viðræðna við Gaflaraleikhúsið um að samnýta Bæjarbíó í Hafnarfirði þar sem kvikmyndasafnið hefur aðstöðu. Hann segir í harðorðu bréfi, sem eru viðbrögð hans við tillögum nefndarinnar, að það sé viðbúið að kvikmyndasafnið taki niður búnað sinn og kanni rétt sinn vegna kostnaðar, sem Erlendur segir að safnið hafi lagt í, við uppbyggingarstarf í þágu bíósins og bíómenningarsögunni. Hann segir það ennfremur ekki fara saman að starfrækja kvikmyndasafn og leikhús, enda mikið rask sem fylgir leikhúsinu. Þá segir hann að safnið hafi bjargað húsnæðinu, sem Erlendur segir að sé það hiklaust talið einstakt í sinni röð á Norðurlöndum, frá þeirri niðurlægingu sem það var komið í eftir margra ára leikhússtarfsemi fyrir aldamótin síðustu. Hann segir þessar hugmyndir ennfremur setja rússnesk/sovéska kvikmyndadagskrá í uppnám en til stóð að halda upp á 70 ára stjórnmálasambands Íslands og Rússlands/Sovétríkjanna með sýningu kvikmynda frá landinu. Málið var tekið fyrir á bæjarráðsfundi í dag og samþykkti meirihluti bæjarráðs, með 2 atkvæðum, að taka undir bókun menningar- og ferðamálanefndar um að fela bæjarstjóra að undirbúa samning við Gaflaraleikhúsið um umsjón og rekstur Bæjarbíós, auk samninga við Leikfélag Hafnarfjarðar og Kvikmyndasafn Íslands um afnot af húsnæðinu til sýningarhalds. Óskar bæjarráð eftir því að drög að samningum liggi fyrir á næsta fundi ráðsins. Bæjarráð leggur áherslu á að við útfærslu nauðsynlegra endurbóta á húsnæðinu verði eftir fremsta megni tekið tillit til þarfa Kvikmyndasafnsins vegna sýningarhalds þess í húsinu og hugað verði að því að vernda það sem enn telst upprunalegt og hefur sérstakt varðveislugildi. Þá leggur bæjarráð áherslu á að sett verði fram raunhæf áætlun til næstu þriggja ára um endurbætur og breytingar á húsnæðinu sem miða að því að stuðla að fjölbreyttri menningarstarfsemi í Bæjarbíó. Sjálfstæðismenn og Eyjólfur Sæmundsson fulltrúi Samfylkingar, sátu hjá.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira