Fleiri vilja klára stjórnarskrármál 3. mars 2013 18:30
Fjörutíu og fimm prósent landsmanna telja mikilvægt að stjórnarskrármálið verði klárað fyrir kosningar en þrjátíu og níu prósentum þykir málið ekki brýnt. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sem framkvæmd var í lok síðustu viku. Spurt var hversu mikilvægt það sé að Alþingi ljúki málinu fyrir komandi kosningar. Ef litið er til allra sem afstöðu tóku kemur í ljós að fjörutíu og fimm prósent aðspurðra segja málið mjög eða frekar mikilvægt. Fimmtán prósent hafa litla skoðun á málinu og þrjátíu og níu prósent segja málið frekar eða mjög lítilvægt. Rétt rúmur meirihluti kvenna leggur áherslu á málið en um fjörutíu prósent karla og litið er til búsetu fólks er áhuginn á niðurstöðu í málinu meiri hjái borgarbúum en hjá landsbyggðarfólki. Áhuginn á málinu er misjafn eftir því hvaða flokka fólk segist ætla að kjósa. Sextíu og sjö prósent kjósenda Bjartrar framtíðar segja mikilvægt að málið verði klárað en þrjátíu og fjögur prósent framsóknarmanna eru þeirrar skoðunar. Áhuginn hjá Sjálfstæðismönnum er lítill, aðeins átján prósent þeirra vilja klára málið nú. Áhuginn hjá samfylkingarfólki er hinsvegar mun meiri, um sextíu prósent þeirra segja mjög eða frekar mikilvægt að málið verði klárað fyrir kosningar. Fimmtíu og níu prósent kjósenda VG eru einnig þeirrar skoðunnar. Og í hópi þeirra sem segjast óákveðnir þegar kemur að hvaða flokk eigi að kjósa eru fimmtíu og fjögur prósent á því að mikilvægt sé að Alþingi ljúki málinu strax.Meirihluti kjósenda Bjartrar framtíðar telur mikilvægt að klára málið fyrir kosningar.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Hringveginum lokað frá Markarfljóti til Öræfa Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Sjá meira