Innlent

Rifrildi við Hótel Selfoss - var kýldur af vinkonu

Lögregla var kölluð að Hótel Selfoss á föstudagskvöld en þar hafði par verið að rífast fyrir utan hótelið. Að sögn lögreglu lauk rifrildinu með því að konan sló manninn með krepptum hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að blóð lak úr báðum vörum hans. Maðurinn leitaði sér sjálfur aðstoðar á slysadeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×