Innlent

Fór úr axlarlið í fótbolta

Lögreglan á Suðurnesjum var í gærdag kvödd í Reykjaneshöllina vegna íþróttaslyss sem þar hafði orðið. Þar hafði stúlka lent í samstuði við annan leikmann í fótboltaleik.

Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Í ljós kom að hún hafði farið úr axlarlið við höggið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×