Innlent

Þrýsta enn á byggingu skíðahúss

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Tölvulíkan af skíðahúsi í hlíðum Úlfarsfells. Skjáskot úr myndbandi Skíðasambandsins.
Tölvulíkan af skíðahúsi í hlíðum Úlfarsfells. Skjáskot úr myndbandi Skíðasambandsins.
Skíðasamband Íslands setti myndband inn á Youtube í dag þar sem ferðast er um tölvulíkan af glæsilegu skíðahúsi í Úlfarsfelli.

Myndbandið er reyndar rúmlega fimm ára gamalt, en Helgi Geirharðsson, formaður mannvirkjanefndar Skíðasambands Íslands, segir sambandið vilja vekja athygli á að fullur áhugi sé enn fyrir verkefninu.

„Á árunum 2005 til 2007 vorum við að velta fyrir okkur hugmyndum um hvernig hægt væri að búa til varanlega aðstöðu fyrir skíðafólk á höfuðborgarsvæðinu, en eins og sést hefur á vosbúðinni hér sunnan heiða til dæmis bara seinasta mánuðinn, þá er mjög erfitt að stunda þessa íþrótt."

Tölvulíkanið sýnir glæsilega byggingu í hlíðum Úlfarsfells með 800 metra langri inniskíðabraut, stólalyftu, veitingastöðum, ísklifurvegg og snjóbrettagarði. Lengd skíðabrautarinnar er sambærileg Kóngsgilinu í Bláfjöllum og 180 metra lækkun frá byrjun til enda brautarinnar, sem er sextíu metrar þar sem hún er breiðust.

„Við sáum að víða erlendis voru menn byrjaðir að byggja svona hús, og þó okkur hafi þótt þetta skrýtið í upphafi sáum við fljótlega að þetta væri alls ekki óraunhæft," segir Helgi, en að hans sögn er Úlfarsfellið eitt albesta fjall sem hægt er að finna í verkefni af þessu tagi.

„Myndbandið var búið til af arkitekt og tilbúið árið 2007. Við gerðum kostnaðaráætlun og þá var haft í huga að þetta yrði verkefni fyrir fjárfesta, innlenda eða erlenda, en að borgin myndi í raun ánafna Skíðasambandinu lóðina fyrir verkefnið. Það væri sjálfstætt skíðahús í rekstri á höfuðborgarsvæðinu og væntanlega með samninga mögulega við sveitarfélögin um íþróttaiðkun barna og fleira í þeim dúr."

Heit kartafla

Helgi segir borgarstjórn hafa tekið vel í hugmyndina þegar hún var sett fram árið 2007. „Sjálfstæðisflokkurinn var þá við völd en fljótlega eftir það tók við þessi rússíbani borgarstjóraskipta sem menn muna kannski eftir, og þá var bara hreinlega ekkert hægt að ræða við borgina um þessa lóð. Það gat enginn tekið ákvörðun og það hefur enginn tekið ákvörðun um þessa lóð ennþá, þrátt fyrir að við höfum reynt að ítreka þessa umsókn sem lögð var fram formlega. Þetta hefur verið einhvers konar heit kartafla og menn hafa í raun aldrei svarað þessu, hvorki neitandi né játandi."

Myndbandið var að sögn Helga, sett inn á ný til þess að reyna að halda málinu til streitu og sjá hvort nýr farvegur myndist fyrir hugmyndinni. „Menn eru búnir að jafna sig á hruninu og átta sig á að það er kannski bara allt í lagi að hefja einhverjar framkvæmdir, sér í lagi ef þær eru arðbærar á sviði ferðaþjónustu fyrir Reykjavíkurborg."

Helgi segir Skíðasambandið ekki hafa náð áheyrn núverandi borgarstjóra, en verið sé að vinna í því að flytja hugmyndina til hans.

Inniskíðabraut í Dubai.Mynd/Getty
Raunhæfur kostur

Skíðahúsið er raunhæfur kostur að mati Helga og kostnaður segir hann að sé á við tvö fótboltahús. „Ég myndi segja að þetta væri sambærileg fjárfesting og Egilshöll eins og hún er, og kosti þá kannski í kringum tvo og hálfan til þrjá milljarða með öllum búnaði sem til þarf," segir Helgi, og nefnir þá skíðalyftur og snjóvélar sem dæmi.

„Það er sambærilegt hús í Hollandi, breiðara en helmingi styttra, en sambærilegt engu að síður að mörgu leyti varðandi afkastagetu á lyftum. Það lokar þegar 1300 manns eru komnir á snjó. Svo eru kannski hátt í tvö þúsund á veitingastöðum og við aðra iðju."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×