Innlent

Ánamaðkur of snemma á ferð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hér má sjá gráána. Myndin er tekin af vef Náttúrufræðistofnunar.
Hér má sjá gráána. Myndin er tekin af vef Náttúrufræðistofnunar.
Ánamaðkur, af tegundinni grááni, var heldur snemma á ferðinni þegar hann skreið upp úr moldinni á sunnudaginn var.

Hér á landi er tíu tegundir ánamaðka að finna. Grááni er einkar algengur í görðum okkar og hefur jafnan þann háttinn á að skríða upp úr moldinni á hlýjum vordögum. Þá koma herskarar þeirra upp úr blómabeðum og grasflötum og skríða út á blautar stéttar til að stefna marklaust hver í sína áttina. Á vef Náttúrustofnunnar kemur fram að tegundin hafi þennan hátt á að dreifa sér og nema nýjar slóðir. Þetta sé sannur vorboði enda gerist það jafnan þegar klaki hefur farið úr jörðu og vorið tekið völdin, oft í kringum mánaðamótin mars/apríl.

Það mun hins vegar vera sjaldgæft að sjá gráána skríðandi á stéttum í febrúar eins og gerðist í Hafnarfirði að morgni sunnudagsins síðastliðins. Hlýindin í vetur, ekki síst í þessum mánuði, gerðu það að verkum að jarðvegur sé klakalaus og af sömu sökum eflaust mun heitari en norm þessa árstíma. Aukinheldur bleyttu tíðar regnskúrir vel upp í moldinni þessa helgina. Náttúrufræðistofnun segir að ef til vill þurfi ánarnir að súpa seiði af bráðlætinu. Framundan sé mars og sjaldnast hafi verið á hann treystandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×