Innlent

World OutGames verða haldnir í Miami

MYND/GETTY
World OutGames leikarnir árið 2017 verða haldnir í Miami í Bandaríkjunum. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, eru bæði stödd í Antwerpen í Belgíu þar sem leikarnir fara fram í ár.

Valið stóð á milli Reykjavíkurborgar og Miami. Hefði það fallið í skaut borgarinnar að halda leikana árið 2017 er ljóst að um einn stærsta viðburð í sögu landsins hefði verið að ræða.

Tilkynnt var um valið á fundi sem GLISA (Gay Lesbian International Sports Association)  hélt í Antwerpen í kvöld.

World Outgames er íþrótta-, menningar- og mannréttindahátíð sem haldin er fjórða hvert ár og stendur yfir í tíu daga. Næsta  hátíð  fer fram í Antwerpen í júlí og hafa þeir þá verið haldnir í Evrópu tvisvar í röð.

Jón Gnarr, borgarstjóri óskaði fulltrúum Miami Beach til hamingju. Hann sagði að þrátt fyrir að Reykjavík hefði ekki orðið fyrir valinu þá hefði undirbúningurinn fyrir útnefninguna vakið talsverða athygli á Reykjavíkurborg.

„Það að komast í tveggja borga úrslit hefur vakið gríðarlega jákvæða athygli á Reykjavík sem viðburðastað. Sú vinna sem var lögð í kynninguna mun koma okkur til góða og við sjáum fram á mörg spennandi verkefni því margar dyr hafa opnast fyrir þátttöku borgarinnar í hinum ýmsu viðburðum,“ sagði Jón Gnarr.


Tengdar fréttir

"Við gerum okkar besta"

"Ég er ekki búin að hitta restina af hópnum en mér skilst að það sé mikil bjartsýni hjá mönnum - við gerum okkar besta,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Í kvöld verður tilkynnt hvort það kemur í hlut Reykjavíkur að halda World Outgames leikana árið 2017 eða Miami í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×