Bara tveir kostir í stöðunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. febrúar 2013 14:32 Jón Þór Sturluson segir að höft verið varla losuð á meðan við notum krónu. Mynd/ GVA.
Mönnum er líklegast að verða ljósara að valkostirnir varðandi framtíðargjaldmiðil Íslendinga eru varla aðrir en áframhaldandi fyrirkomulag með krónu eða innganga í Evrópusambandið og myntbandalagið, segir Jón Þór Sturluson, dósent í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og fyrrverandi aðstoðarmaður Björgvins Sigurðssonar þáverandi viðskiptaráðherra. Þannig skýrir Jón Þór niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um viðhorf fólks til krónunnar. Í könnuninni sögðust 52,6 prósent þeirra sem afstöðu tóku vilja að krónan verði framtíðargjaldmiðill á Íslandi, en 47,4 prósent sögðust ekki vilja krónuna áfram. Jón Þór telur að viðhorf til aðildar að Evrópusambandinu hafi ef til vill litað svör fólks við þessari spurningu. „Innganga í Evrópusambandið er umdeild af ýmsum öðrum ástæðum og fólk er því kannski ekki að aðgreina þessar spurningar," segir Jón Þór í samtali við Vísi. Hann bendir líka á að það gæti skipt höfuðmáli hvort spurt sé hvort menn vilji taka upp nýjan gjaldmiðil eða hvort spurt sé hvort menn vilji halda í krónuna. „Það er vel þekkt að framsetning spurninga getur skipt höfuðmáli og það þarf að hafa í huga ef við viljum greina hvernig afstaða almennings er að þróast.," segir Jón Þór. Jón Þór segir að forsendan fyrir því að hægt sé að halda krónunni sé sú að trúverðugleiki peningastefnu Seðlabanka Íslands aukist verulega. Það þurfi að skapa væntingar um að hér verði skikkanleg verðbólga. Þett hafi gengið illa að undanförnu. „Seðlabankinn þar að sýna mikla íhaldssemi við vaxtaákvarðanir sínar," segir Jón Þór. Þannig sendir hann þau skilaboð að honum sé full alvara í að ná tökum á verðbólgunni. Þetta sé sú leið sem Seðlabankinn hafi verið að reyna að fara en það ekki gengið mjög vel. „Eitt helsta vandamálið við íslensku peningastefnuna er það að stór hluti þjóðarinnar er með bundna vexti til lengri tíma. En sú breyting sem nú er að verða er að fólk er í auknu máli að taka óverðtryggð lán sem eru þá bundin til millilangs tíma eða skemmri tíma, frá einu ári og upp í fimm ár. Þá hafa stýrivextirnir meiri áhrif á þá vexti," segir Jón Þór. Jón Þór segir þó að stærsta verkefnið sé að finna leið út úr gjaldeyrishöftunum. Gjaldeyrishöftin séu ef til vill ágæt á meðan ólga er í öðrum Evrópuríkjum en óumdeilt sé að þau skerði framtíðarvaxtarmöguleika til lengri tíma. Bent hafi verið á að ef evra yrði tekin upp með inngöngu í myntbandalagið þá gæti það verið ein leið úr höftunum. „Það er ekki vel sýnileg fljótfær leið út úr höftunum sem byggja einvörðungu á krónunni," segir Jón Þór.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Sjá meira