Börnin þéna vel á síldarævintýrinu í Kolgrafafirði Gissur Sigurðsson skrifar 5. febrúar 2013 10:59 Unnið var hörðum höndum í Kolgrafarfirð í morgun. Mynd/ Vilhelm.
Sannkallað síldarævintýri hefur ríkt í fjörunum við Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi í allan morgun, þar sem að minnsta kosti 50 ungmenni úr Grundarfirði keppast við að tína dauða síld upp í kör, sem síðan verða flutt til Sandgerðis, þar sem síldinni verður breytt í loðdýrafóður til útflutnings. Að sögn Bjarna Sveinbjörnssonar bónda á Eiði við fjörðinn, er mikill hugur í krökkunum og strax klukkan hálf tíu var búið að safna að minnstakosti tíu tonnum, og stefnt er að tuttugu tonnum, eða fullfermi á vörubíl, í þessari lotu. Og það er eftir nokkru að slægjast hjá krökkunum, því Skinnfiskur í Sandgerði borgar átta krónur fyrir kílóið, þannig að bílfarmurinn mun leggja sig á 160 þúsund krónur, sem krakkarnir ætla að leggja til félagsstarfs að eigin vali, á Grundarfirði. Og til að hressa upp á krakkana í miðju atinu, býður Guðrún Lilja Arnórsdóttir húsfreyja á Eiði, upp á heimabakaða snúða og heitt súkkulaði í fjöruborðinu. Mikið kapp er í krökkunum að ná sem mestu, áður en aðfallið kaffærir síldina, upp úr hádegi. Vísindamenn Hafrannsóknastofnunar eru að meta niðurstöður úr úr myndatökum og mælingum frá því í gær, til að meta hversu mikið af síld hefur drepist að þessu sinni, en það liggur ekki enn fyrir.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira