Barcelona aftur á sigurbraut með stórsigri Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 10. febrúar 2013 10:45
Barcelona gjörsigraði Getafe 6-1 í hádegisleik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Messi skoraði aðeins eitt mark í leiknum en yfirburðir Barcelona í leiknum voru algjörir. Það tók Alexis Sanchez aðeins sex mínútur að skora fyrsta mark leiksins og sjö mínútum síðar kom Messi Barcelona í 2-0. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik. Barcelona hafði gert tvö jafntefli í röð í deildinni en liðið var aldrei líklegt til að misstíga sig í dag. David Villa skoraði þriðja mark leiksins á 13. mínútu seinni hálfleiks en fjögur mörk voru skoruð á ellefu síðustu mínútum leiksins. Tello kom Barcelona í 4-0 á 79. mínútu en fjórum mínútum síðar minnkaði Alvaro muninn í þrjú mörk. Iniesta hirti upp boltann þegar einleikur Messi í teignum var stöðvaður og skoraði fimmta mark Barcelona á 90. mínútu. Enn var tími fyrir Pique að bæta við marki þó aðeins tveimur mínútum hafi verið bætt við venjulegan leiktíma og 6-1 sigur staðreynd. Barcelona lyfti sér upp í 62 stig, 12 stigum á undan Atletico Madrid sem á leik til góða og 16 stigum á undan Real Madrid sem er í þriðja sæti. Getafe er í 12. sæti með 29 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Sjá meira