Handbolti

Snorri | Held áfram á meðan Aron hefur not fyrir mig

Sigurður Elvar Þórólfsson í Barcelona skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson telur að framtíðin sé björt hjá íslenska landsliðinu þrátt fyrir vonbrigðin eftir tapið gegn Frökkum á HM í kvöld.
Snorri Steinn Guðjónsson telur að framtíðin sé björt hjá íslenska landsliðinu þrátt fyrir vonbrigðin eftir tapið gegn Frökkum á HM í kvöld. Mynd / Vilhelm
„Þegar við náum upp góðum leik gegn liði eins og Frakklandi á stórmóti við þessar aðstæður þá eru það alltaf smáatriðin sem skilja á milli. Þeir refsuðu okkur fyrir öll mistök og það var munurinn á þessum liðum í dag," sagði Snorri Steinn Guðjónsson í leikslok en leikstjórnandinn skoraði 2 mörk úr alls 6 skotum sínum í leiknum.

„Sóknarleikur „hikstaði" aðeins þegar Frakkar settu varnarmann á Aron (Pálmarsson) og „plúsuðu" hann. Við leystum það síðan vel að mínu mati og sérstaklega eftir að Ólafur Gústafsson kom sterkur inn og dúndraði á markið. Á endanum tókst okkur að leysa þetta en Thierry Omeyer reyndist sterkur í markinu undir lokin. Hann, Nikola Karabatic og Cedric Sorhaindoo sáu um að loka þessum leik á síðustu fimm mínútunum. Með smá heppni og ef ég hefði dottið aðeins betur í gang í skotunum þá hefðum við getað leyst þetta enn betur," sagði Snorri en hann telur margt jákvætt vera í gangi hjá íslenska landsliðinu og horfir bjartsýnn fram á veginn.

„Þetta var gríðarlega gott mót fyrir ungu strákana og gott fyrir okkur að þeir öðlist reynslu. Rússaleikurinn eru mestu vonbrigðin – við klúðruðum því og settum sjálfa okkur í þessa stöðu."

Snorri ætlar sér að halda áfram að leika með landsliðinu á meðan Aron Kristjánsson telur þörf fyrir hann í liðinu.

„Það hefur ekki verið eins mikið álag á mér í vetur og á undanförnum tveimur árum. Ég er í góðu standi, laus við meiðsli, og ég er spenntur fyrir framhaldinu. Við getum klárað undankeppnina fyrir Evrópumeistaramótið í Danmörku með því að vinna Slóvena, og við fáum inn leikmenn sem voru meiddir á þessu móti. Það er því bara bjart framundan," sagði Snorri Steinn Guðjónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×