Riddari götunnar lést eftir árás Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. janúar 2013 10:45 Guðjón Guðjónsson vakti athygli á gljáfægðri bifreið sinni sem hann ók niður Laugaveginn. Mynd/ Stefán.
Hinn 76 ára gamli Guðjón Guðjónsson sem lést eftir að ráðist var á hann og bíl hans stolið var mörgum þeirra sem sækja miðborgina á sumrin að góðu kunnur og var jafnan kallaður Riddari götunnar. Hann hafði vakið athygli fyrir það að hafa spilað úrvals harmonikkutónlist fyrir vegfarendur Laugavegs og Austurstrætis á góðviðrisdögum síðustu sumra. Guðjón viðbeinsbrotnaði og tví-rifbeinsbrotnaði í árásinni sem hann varð fyrir en handleggsbrotnaði ekki eins og fram kom í frétt á Vísi í gær. „Ég fer nú líklega að hætta þessu fljótlega. Maður þarf nú að vera til friðs einstöku sinnum," sagði Guðjón Guðjónsson, fyrrverandi flugstjóri og húsasmíðameistari, í samtali við Fréttablaðið sumarið 2008 þegar hann ræddi um tónlistaráhuga sinn. Tónlistin ómaði gjarnan út um bílrúðuna á gljáfægðri Mercedez Benz bifreið hans þegar hann ók niður Laugaveginn. Dóttir Guðjóns lýsti því hér á Vísi í gær hvernig veist var að honum þegar hann var að aka Hverfisgötu í Reykjavík. Karlmaður mun hafa stöðvað bifreiðina með því að standa í vegi fyrir henni úti á miðri götunni. Því næst hafi hann fari inn í bílinn og neytt hann til þess að keyra inni í Kópavog. Málsatvik eru ekki skýr hvað atburðarrásina varðar. Dóttir mannsins segir það þó óumdeilt að tvær konur hafi komið að manninum þar sem hann lá lemstraður í götunni.Hér má lesa frásögnina af atvikinu.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Fleiri fréttir Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Sjá meira