Ólafur Ragnar lét Gordon Brown heyra það Boði Logason skrifar 23. janúar 2013 17:37
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lét Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, heyra það á ráðstefnu um efnahagsmál sem stendur nú yfir í Davos í Sviss. Í viðtali við bresku fréttastofuna Sky News sagði forsetinn að Íslendingar myndu aldrei gleyma meðferðinni sem þeir fengu hjá breska forsætisráðherranum fyrrverandi eftir efnahagshrunið haustið 2008. Þá beittu Bretar hryðjuverkalögum á Íslendinga vegna Icesave-reikningana frægu. Ólafur Ragnar sagði að Gordon Brown hefði orðið sér til skammar þegar hann ákvað að setja Íslendinga á lista með al Qaeda og Talíbönum. „Við Íslendingar erum ekki búnir að gleyma því," sagði Ólafur við Sky. Gordons Brown yrði minnst fyrir þetta á Íslandi næstu aldirnar, þótt að Bretar væru löngu búnir að gleyma honum. Gordon Brown er einnig staddur á ráðstefnunni og tekur þar þátt í pallborðsumræðum. Þá var íslenski forsetinn einnig spurður út í aðild Íslands að Evrópusambandinu og sagðist hann ekki gera ráð fyrir því að Ísland gengi í sambandið á meðan hann væri forseti. „Ef þú vilt að ég veðji, þá myndi ég tvímælalaust segja nei," sagði Ólafur Ragnar kokhraustur að vanda.Umfjöllun Sky News má sjá hér.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Sjá meira