Frekari breytingar stjórnarskrárfrumvarpinu nauðsynlegar Þorbjörn Þórðarson skrifar 23. janúar 2013 21:14
Frekari breytingar á stjórnarskrárfrumvarpinu eru nauðsynlegar áður en hægt er að samþykkja frumvarpið sem stjórnskipunarlög. Þetta er mat laganefndar Lögmannafélags Íslands. Nefndin gerir margar athugasemdir við efni frumvarpsins. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna stjórnarskrárfrumvarpsins í gær og gerði hann ýmsar athugasemdir við efni frumvarpsins. Tryggvi telur að mannréttindakaflinn geti valdið réttaróvissu og gerði hann athugasemdir við orðalag í frumvarpinu sem hann telur fela í sér nýbreytni í íslenskri lögfræði. Í dag kom svo umsögn frá laganefnd Lögmannafélags Íslands. Þar kveður við svipaðan tón og hjá Tryggva. Í umsögn um mannréttindakaflann segir lögmannafélagið að tilgangur 7. gr. frumvarpsins sé óljós, en þar er talað um „réttinn til lífs." Þá segir jafnframt í umsögninni að ákvæði í frumvarpinu um „mannlega reisn" sé óljóst. Laganefndin telur að ákvæði frumvarpsins um tjáningarfrelsi sé þannig að skilyrði fyrir lögum sem hefti tjáningarfrelsi séu mun afmarkaðri og betur lýst í gildandi stjórnarskrá, en samkvæmt frumvarpinu. Þá telur laganefndin að ákvæði sem heimili skerðingu mannréttinda í frumvarpinu stangist á við þá aðferðafræði sem breytingar á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar árið 1995 byggðu á. Þá telur laganefndin að nokkur ákvæði frumvarpsins leggi mjög óljósar skyldur á ríkið, sem sé óheppilegt. Lokaorð nefndarinnar eru býsna skýr en þar segir að „frumvarpið þarfnist þó nokkurrar endurskoðunar. Laganefnd geti því ekki mælt með því að frumvarpið verði samþykkt í óbreyttri mynd." Eins og við greindum frá í fréttum okkar í gær hafa umsagnir sem borist hafa stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ekki breytt þeirri afstöðu meirihluta nefndarinnar að afgreiða frumvarpið úr nefnd. Málið er hins vegar enn hjá nefndinni og óvíst hvenær önnur umræða um það hefst í þinginu.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira