Enginn samningsvilji af hálfu sveitarfélaganna Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. janúar 2013 11:46 Ólafur segir sveitarfélögin hafa hafnað flestum hugmyndum samninganefndarinnar. „
Kennarar vinna allt of mikið og skortir tíma til að sinna verkefnum sínum, en þeim hefur fjölgað mikið og áherslurnar breyst." Þetta segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, en félagið hefur fundað fjórum sinnum með Sambandi íslenskra sveitarfélaga undir stjórn sáttasemjara síðan samningaviðræður þeirra á milli sigldu í strand fyrir áramót. Ólafur segir sveitarfélögin hafa hafnað flestum hugmyndum samninganefndarinnar, en meðal þeirra atriða sem Félag grunnskólakennara hefur bent á eru starfslýsingar kennara, jöfnun grunnlauna, nánari skilgreining á starfsdögum, bekkja- og hópastærðir, og endurskoðun ákvæða um endurmenntun kennara. „Við sömdum á sínum tíma til ársins 2014, en við vorum með ákvæði í okkar kjarasamningi sem sagði að við ættum að fara inn í samninginn og skoða hvernig kennarastarfið hefur verið að þróast á undanförnum árum, álagshluti og fleira," segir Ólafur, og bætir því við að enginn vilji sé af hálfu sveitarfélaganna að koma til móts við samninganefndina. Í fréttabréfi Félags grunnskólakennara sem kom út á þriðjudag segir að báðum aðilum sé ljóst að grípa verði til róttækra aðgerða til að bregðast við ástandinu, en samningsaðilar séu ekki sammála um hvaða leiðir skuli fara. Ólafur segir þó heilmargt þurfa að gerast áður en kennarar fari að hugleiða verkfall. „Það er auðvitað eitt af þeim tækjum sem menn hafa ef búið er að reyna allt annað, en við erum ekki komnir á þann stað ennþá."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira