Hafnfirðingar lána Reykvíkingum salt 26. janúar 2013 15:09
Snjóhreinsun hefur gengið vel í Reykjavík bæði á götum og gönguleiðum í dag. Þá sjá Hafnfirðingar Reykvíkingum fyrir salti þar sem saltbirgðir borgarinnar eru á þrotum. Snjóhreinsun hefur gengið vel í Reykjavík bæði á götum sem og á gönguleiðum. Snemma í morgun var 10-25 cm jafnfallinn snjór í Reykjavík, um 10 cm í vesturhluta borgarinnar og 25 cm austan Elliðaáa. Mannskapur var ræstur út í nótt með um 30 bíla og tæki. Stærri ruðningstæki fóru á helstu stofnleiðir og dráttavélar á gönguleiðirnar að því er fram kemur í frétt á vef Reykjavíkurborgar. Ákveðið var að fara einnig í húsagötur í Grafarvogi, Úlfarsárdal, Grafarholti, Árbæ og Breiðholti, sem og húsagötur austan Snorrabrautar. Beðið verður átekta með að fara í húsagötur vestan Snorrabrautar en þar féll minni snjór og jafnframt er spáð hlýnandi veðri á morgun og á mánudag. „Við tökum þó stöðuna síðar í dag og förum í Vesturbæinn ef þörf krefur á morgun," segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir skrifstofustjóri rekstrar og þjónustu borgarlandsins. Dráttarvéladeild borgarinnar, sem annast snjóhreinsun á gönguleiðum í austurhluta borgarinnar, var með allar nýju vélarnar sjö sem og þrjár vélar frá verktökum á gönguleiðunum í nótt á skilgreindum stofnbrautum. Í framhaldinu var svo byrjað á almennum leiðum, stígum inn í hverfunum og útivistarsvæðum. Mjög hefur gengið á saltbirgðirnar í Reykjavík en næsta skip með salt kemur ekki að landi fyrr en á mánudagskvöldið. Þá kemur sér vel að eiga góða granna og lána Hafnfirðingar salt í dag.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Fleiri fréttir Tillaga um að fækka varaforsetum felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Sjá meira