Katrín býður sig fram til varaformanns 27. janúar 2013 14:37 Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júlíusdóttir staðfestir í fréttatilkynningu til fjölmiðla að hún bjóði sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar. Katrín Júlíusdóttir er 38 ára gömul og var kjörin á Alþingi árið 2003. Hún var skipuð iðnaðarráðherra í maí 2009 og gegndi því embætti þar til hún tók við sem fjármála- og efnahagsráðherra í október 2012. „Ég tók þátt í að stofna Samfylkinguna og hef unnið að uppbyggingu flokksins allar götur síðan. Ég starfaði í ungliðahreyfingunni og hef vaxið úr grasrót til trúnaðarstarfa fyrir flokkinn. Ég þekki því Samfylkinguna og ég þekki fólkið sem í henni er. Það skiptir líka máli að það þekkir mig og mín verk. Sem varaformaður verður það verkefni mitt að tryggja að raddir þess hljómi og nái eyrum fulltrúa okkar við stjórn landsins," segir Katrín í fréttatilkynningunni. Katrín var varaformaður og formaður ungra jafnaðarmanna á árunum 2000-2001. Katrín var fulltrúi Röskvu í Stúdentaráði og háskólaráði Háskóla Íslands 1997-1999 og sat í stjórn Evrópusamtakanna 2000-2003. Hún sat í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar 2000-2003, þar af sem varaformaður hennar 2001-2003. Katrín mun vera sú þingkona sem lengst hefur setið á Alþingi eftir næstu þingkosningar, nái hún kjöri. Katrín er gift Bjarna Bjarnasyni rithöfundi og eiga þau fjóra syni. Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram um næstu helgi. Áður hafði Oddný Harðardóttir gefið kost á sér til varaformanns Samfylkingarinnar.
Tengdar fréttir Oddný vill verða varaformaður - Katrín íhugar alvarlega framboð Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi fjármálaráðherra vill verða næsti varaformaður Samfylkingarinnar. Núverandi fjármálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir, er einnig alvarlega að íhuga framboð til sama embættis. 20. janúar 2013 18:45 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira
Oddný vill verða varaformaður - Katrín íhugar alvarlega framboð Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi fjármálaráðherra vill verða næsti varaformaður Samfylkingarinnar. Núverandi fjármálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir, er einnig alvarlega að íhuga framboð til sama embættis. 20. janúar 2013 18:45